Sigurvilji frumsýnd 8. febrúar

5. febrúar 2025

Laugardaginn 8. febrúar verður heimilidarmyndin Sigurvilji frumsýnd. Myndin fjallar um Sigurbjörn Bárðarson tamningameistara og landsliðsþjálfara.

Í tilkynningu frá framleiðendum segir:

Sigurbjörn er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann hóf ferilinn ungur með tvær hendur tómar en var fljótur að læra af hestamönnum og bílabröskurum hvernig hann ætti að ná árangri og komast á toppinn. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum.

Saga Sigurbjörns er stórbrotin og hefur veitt mörgum innblástur til að láta ekki deigan síga og gefast ekki upp þótt á móti blási. Í myndinni er farið yfir sögu þessa merka íþróttamanns og rýnt í persónueinkennin. Þá er einnig skyggnst bak við tjöldin í þeim verkefnum sem hann glímir við í dag. Á áttræðisaldri er hann enn í fremstu röð hestaíþróttamanna og gefur þeim yngri ekkert eftir með keppnisskapið logandi í brjósti.

Sigurbjörn hefur oftar orðið Íslandsmeistari, Evrópumeistari og heimsmeistari á íslenskum hestum en nokkur annar. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025.

Myndin verður frumsýnd laugardaginn 8. febrúar í Laugarásbíói. Myndin fer í kjölfarið í almennar sýningar í Laugarásbíói og í Bíóhúsinu á Selfossi.

Framleiðendur Sigurvilja eru Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir en saman reka þær framleiðslufyrirtækið Hekla Films. Hrafnhildur Gunnarsdóttir fer með leikstjórn og stjórn kvikmyndatöku. Klippingu annaðist Jakob Halldórsson. Biggi Hilmars frumsamdi tónlist sérstaklega fyrir myndina og hljóðhönnun var í höndum Péturs Einarssonar. Sigurvilji hlaut framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hekla Films hefur einnig framleitt Konung fjallanna, heimildamynd um Kristin Guðnason fjallkóng. Konungur fjallanna var mest sótta íslenska heimildamyndin í kvikmyndahúsum árið 2023.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla hestamenn til að fara í kvikmyndahús og sjá Sigurvilja!

 

Fréttasafn

6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
Lesa meira