Gundula Sharman nýr forseti FEIF

30. janúar 2025

Aðalfundur FEIF fór fram þann 28. janúar. Fyrir fundinum lágu hefðbundin aðalfundarstörf auk kosninga til stjórnar FEIF. Fulltrúar Íslands á fundinum voru þau Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH og Friðrik Már Sigurðsson fyrir hönd BÍ.

Fráfarandi forseti FEIF var Jean-Paul Blaz gaf ekki kost á sér áfram en hann hefur setið sem forseti síðastliðin tvö ár. Í hans stað var kosin Gundula Sharman, hún var tilnefnd af stjórn FEIF og hlaut auk þess stuðning frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Hún segir meðal annars að grunngildin í starfi sínu innan FEIF hafi annars vegar snúið að því að skapa gott samfélag og efla velferð, bæði fyrir hesta og fólk. Gundula hefur formaður æskulýðsnefndar FEIF í mörg ár.

Framtíðarsýn hennar er að halda áfram að því að byggja upp sameinað alþjóðlegt kerfi í ræktun, íþróttum og menntun og efla tengsl þvert á landamæri með því að styðja yngri og minni samtök og endurvekja „brautryðjandaandann“ sem einkennist af hugsjónum og ferskleika. Þá telur hún að það sé kominn tími til að gera FEIF sýnilegra á alþjóðavettvangi.

Formaður frístundanefndar var kosinn Johan Andersson, tilnefndur af SIF. Hann hefur síðan 2022 verið formaður sænsku frístundanefndarinnar og setið í stjórn SIF.

Formaður sportnefndar, Will Covert gaf kost á sér til endurkjörs. Hann býr í Kaliforníu og hefur verið í sportnefnd FEIF síðan 2020.

Formaður æskulýðsnefndar var kosin Catherine Mynn en hún var tilnefnd af stjórn FEIF. Catherine býr í Sviss, hún sat í æskulýðsnefnd 2008-2016 og hefur tekið þátt í flestum æskulýðsviðburðum á vegum FEIF frá árinu 2004.

Formaður laganefndar Jens Iversen gaf kost á sér til endurkjörs. Hann er lögfræðingur og starfar sem slíkur í Danmörku. Hann var jafnframt forseti FEIF frá 2006 til 2014, var meðlimur í sportnefnd frá 1999 til 2007 og sinnti hlutverki gjaldkera FEIF árið 2003.

Formaður Aganefndar Caroline van de Bunt gaf einnig kost á sér til endurkjörs hún er starfandi dýralæknir frá Hollandi og hefur tvívegis verið yfirdýralæknir á HM árin 2017 og 2019.

Ísland á nokkra fulltrúa í nefndum FEIF þeir eru Friðrik Már Sigurðsson og Olil Amble í kynbótanefnd. Sigurbjörn Bárðarson og Hulda Gústavsdóttir í Sportnefnd. Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir í æskulýðsnefnd, Herdís Reynisdóttir í menntanefnd, Elisabeth Jansen í íþróttadómaranefnd og Þorvaldur Kristjánsson í kynbótadómaranefnd.

Framundan er svo FEIF ráðstefna fyrstu helgina í febrúar þar sem fleiri fulltrúar Íslands munu koma saman með það að leiðarljósi að styðja við og efla starf FEIF.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira