Íslandsmót í hestaíþróttum

13. nóvember 2024

Miklar breytingar á skipulagi og framkvæmd í farvatninu.

Íslandsmót barna- og unglinga, Íslandsmót ungmenna og fullorðinna ásamt Íslandsmóti í Gæðingalist.

Á ársþingi LH í októberlok voru nýjar reglugerðir um Íslandsmótin samþykktar og því eru hér með auglýst til umsóknar fyrir mótshaldara.  Á þinginu var samþykkt að Íslandsmótunum skuli úthluta með þriggja ára fyrirvara.

Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi hefur þegar fengið Íslandsmóti ungmenna og fullorðinna árið 2025 úthlutað og mun mótið fara fram á Brávöllum á Selfossi dagana 26-29 júní.

Einnig var það samþykkt að keppni í gæðingakeppnisgreinum skuli vera með á Íslandsmóti barna- og unglinga og því verða krýndir Íslandsmeistarar í gæðingakeppni í þessum flokkum á mótinu.  Þingið samþykkti einnig að sérstakt Íslandsmót í Gæðingalist skuli haldið á vordögum og Íslandsmeistarar krýndir í þeirri grein á sérstöku móti þegar innanhússmótatímabilið er í fullum gangi, eða fyrir 15 maí.

Áhugamannamót Íslands fékk rýmri ramma um flokkaskiptingar og reglur um þátttöku á mótum sem eru til þess fallnar að auka þátttöku á mótinu og gera mótshöldurum léttara fyrir við að halda glæsilegt áhugamannamót.

Mót sem auglýst eru til umsóknar eru því eftirfarandi mót (í tímaröð), og skulu umsóknir berast fyrir 15. Desember næstkomandi og verður mótunum úthlutað mótshöldurum í kjölfarið.

  • Íslandsmót í Gæðingalist 2025
  • Íslandsmót barna- og unglinga 2025
  • Áhugamannamót Íslands 2025
  • Íslandsmót barna- og unglinga 2026
  • Íslandsmót ungmenna- og fullorðinna 2026
  • Íslandsmót ungmenna og fullorðinna 2027
  • Íslandsmót barna og unglinga 2027

Frekari útlistun á reglugerðum þessara móta og framkvæmd þeirra verður sett fram í frétt á vef LH og öðrum miðlum ásamt ýmsum fróðleik um þær breytingar sem þingið í október samþykkti á næstu vikum.

Landssamband hestamannafélaga hvetur áhugasama mótshaldara Íslandsmóta næstu ára, Íslandsmóts í gæðingalist og Áhugamannamóts Íslands til þess að senda inn umsóknir á lh@lhhestar.is og taka þátt í því að gera þessum frábæru mótum hátt undir höfði. Frekari u pplýsingar má nálgast á skrifstofu LH

 

Fréttasafn

10. september 2025
Dagana 21. til 23. nóvember nk. verður haldið leiðtoganámskeið FEIF sem ætlað er ungmennum á aldrinum 18-26 ára. Námskeiðið er á vegum Danska Íslandshestasambandsins (DI) og er haldið í Gringdsted Landbúnaðarskólanum í Billund í Danmörku. Yfirskrift námskeiðsins er „Fighting Fit – Conflict, Fitness & Teamwork in Action“ og markmiðið er að hvetja ungmenni til að taka þátt í félagsstörfum í hestamennsku og að þátttakendur efli færni sína sem leiðtogar. Aðalfyrirlesarar verða Rebekka Hyldgaard, sjúkraþjálfari, sem fjallar um hvernig líkamsþjálfun getur bætt árangur í reiðmennsku, og Professor Janne Winther Christensen frá Aarhus University sem fjallar um nýjustu rannsóknir um „ animal conflict behaviour “. Þátttaka í viðburði sem þessum gefur frábæra reynslu, skapar tengsl og styrkir þátttakendur til frekari leiðtoga og ábyrgðarstarfa innan hestamannafélaganna. Við hvetjum hestamannafélögin til að hvetja fulltrúa sína til þátttöku á þessu námskeiði og minnum á mikilvægi þess að efla ungt fólk til þátttöku í nefndum og störfum innan félaganna til að efla nýliðun ásamt því að móta leiðtoga framtíðarinnar. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu FEIF. Umsóknarfrestur er 15. október 2025 . Námskeiðið hefst föstudaginn 21. nóvember kl 16:00 og endar sunnudaginn 23. nóvember kl 13:00. Kostnaður er 200€ og innifalið í því er gisting, matur og fræðsla.
10. september 2025
Landssamband hestamannafélaga auglýsir til umsóknar eftirfarandi mót: · Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2028 · Íslandsmót barna og unglinga 2028 · Íslandsmót í gæðingalist 2026 (innanhússmót sem haldið skal fyrir 15. maí) · Áhugamannamót Íslands 2026 Dagsetningar mótanna eru ákveðnar í samráði við mótshaldara og að teknu tilliti til dagsetninga annarra móta. Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna er keppt í íþróttakeppni í efsta styrkleikaflokki þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu. Á Íslandsmóti barna og unglinga er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni. Á Íslandsmóti í gæðingalist er keppt í öllum aldursflokkum og skal mótið haldið fyrir 15. maí 2026. Á Áhugamannamóti Íslands er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni í 1., 2. og 3. flokki. Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is .
14. ágúst 2025
Hörður Hákonarson hestamaður og alþjóðlegur hestaíþróttadómari í Reykjavík er látinn.
13. ágúst 2025
Til hamingju Ísland með frábært landslið
13. ágúst 2025
Úrslit í fjórgangi & fimmgangi
10. ágúst 2025
Þvílíkur morgunn!!!
10. ágúst 2025
Þá eru B-úrslitum lokið og ljóst hvaða keppendur bæta sér í toppbaráttuna í hverjum flokki.
10. ágúst 2025
Kristján Árni tvöfaldur heimsmeistari
9. ágúst 2025
Kristján Árni - Heimsmeistari
8. ágúst 2025
Niðurstöður úr kynbótasýningum sjö vetra og eldri hrossa
Lesa meira