Íslandsmót og Áhugamannamót 2025 auglýst til umsóknar

20. september 2024

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna, Íslandsmót barna- og unglinga og Áhugamannamót Íslands árið 2025 eru auglýst til umsóknar fyrir áhugasama og metnaðarfulla mótshaldara. 

Dagsetningar mótanna eru eftirfarandi:

  • Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 26. til 29. júní
  • Íslandsmót barna og unglinga 17. til 20. júlí
  • Áhugamannamót Íslands, dagsetning ákveðin í samráði við mótshaldara

Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna skal keppt í einum styrkleikaflokki í hvorum flokki fyrir sig, keppt í greinum þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu, en það eru V1, F1, T1, T2 ásamt skeiðgreinum, PP1, P1, P2 og P3. Þátttökurétt hafa pör sem á keppnisárinu hafa náð lágmarkseinkunn í hverri grein, keppnisnefnd LH gefur út lágmörkin í febrúar.

Þátttökuréttur á Íslandsmóti barna og unglinga er opinn öllum keppendum þessara flokka og keppt skal í eftirfarandi greinum:
Börn: V2, T3, T4 og gæðingalist.
Unglingar: V1, T1, F2, T4, gæðingalist og skeiðgreinar.

Á Áhugamannamóti Íslands skal keppt í einum styrkleikaflokki, 1. flokki, og keppnisgreinar eru T3, T4, T7, F2, V2, V5, gæðingaskeið, 100m. skeið, ásamt A-flokki og B-flokki gæðinga. Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþóttakeppni á síðastliðnum 5 árum.

Mótshöldurum er heimilt að bjóða upp á fleiri greinar kjósi þeir svo, sem og sýningargreinar en í sýningargreinum skal ekki krýna Íslandsmeistara.

Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira