Knapafundur ársins 17. mars
20. febrúar 2025
Keppnisknapar, mótshaldarar, dómarar og aðrir sem að mótahaldinu í hestamennskunni koma eru boðnir velkomnir á knapafund ársins á vegum Landssambands hestamannafélaga.
Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 3. hæð, mánudaginn 17. mars klukkan 19:00. Fundurinn verður bæði á staðnum og í streymi.
Farið verður yfir reglur mótahaldsins sem gilda árið 2025, breytingar sem hafa átt sér stað og ýmislegt gagnlegt tengt mótahaldinu.
Nánari dagskrá kemur síðar, en takið endilega kvöldið frá.
Fréttasafn

Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir
•
14. júní 2025
Nú fer fram Reykjavíkurmeistaramót Fáks. Mótið er stærsta hestaíþróttamót sem haldið hefur verið á Íslandi, en fjöldi skráninga voru yfir þúsund. Við brautina sitja landsliðsþjálfarar Íslands, Hekla Katharína Kristinsdóttir og Sigurbjörn Bárðarson, og fylgjast náið með keppendum sem eru líklegir til að ná árangri – ekki aðeins hér heima, heldur einnig á stærsta sviðinu, HM í hestaíþróttum.

Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir
•
12. júní 2025
Að fara með hesta á Heimsmeistaramót er stórt verkefni og að mörgu að huga, en eitt er það sem er allra mikilvægast og það er að koma hestunum frá Íslandi og á mótsstað erlendis. Frá árinu 1986 hefur Gunnar Arnarson ehf aðstoðað Landssamband hestamannafélaga við útflutning á hestum sem eru á leið á stórmót erlendis. Gunnar Arnarson ehf hefur styrkt LH um kostnað sem hlýst af umsýslu við útflutninginn auk þess að gefa Landsliðinu fjölda folatolla í gegnum árin.







