Taktu þátt í ljósmyndasamkeppninni 2023

16. febrúar 2023

FEIF og IPZV hafa staðið fyrir ljósmyndasamkeppni undanfarið ár og verður LH ásamt íslandshestasamtökunum í Ungverjalandi og Kanada samstarfsaðilar keppninnar í ár. 

Eins og í fyrra verða fjögur mismunandi þemu yfir árið og fyrsta þemað er "Æfingin skapar meistarann".

Sömu reglur gilda en þær eru: 

  • Myndirnar verða að vera í Landscape
  • Senda má hámark 3 myndir
  • Myndirnar verða að innihalda íslenska hestinn
  • Myndin verður að vera tekin af þér eða fjölskyldu eða vinum. Myndir frá atvinnuljósmyndurum eru ekki samþykktar.
  • Skylda er að vera með hjálm ef knapi er á baki á myndinni.
  • Vinsamlegast setjið inn heimilisfang svo hægt sé að senda sigurvegara keppninnar vinninginn

Alþjóðleg dómnefnd velur bestu myndirnar og þær þrjár bestu verða síðan valdar til kosningar á netinu og þær birtar í dagatali FEIF 2024.

Vinsamlegast sendið myndirnar á photo@feif.org

Síðasti dagur til að senda inn mynd er 1. apríl 2023.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira