Miðbæjarreiðin fer fram 3. júní

26. maí 2023

Miðbæjarreið Landssambands Hestamannafélaga og Horses of Iceland verður haldin laugardaginn, 3. júní kl. 15:00 í miðbæ Reykjavíkur. Miðbæjarreiðin er ákaflega skemmtileg hefð sem vekur athygli á því mikilvæga hlutverki sem Íslenski hesturinn hefur í hjörtum okkar Íslendinga.

Í ár mun reiðin hefjast formlega við Hallgrímskirkju kl 15:00 þaðan sem haldið verður niður Skólavörðustíginn, Bankastræti, yfir Lækjargötuna, Austurstræti, Pósthússtræti og stoppað við Austurvöll. Þar munu knapar stíga af baki og áhorfendum gefst tækifæri á að koma nær hestunum, klappa þeim, taka myndir og hitta knapana, sem verða á öllum aldri. Á Austurvelli verður einnig tónlistaratriði og samningur vegna Landsmóts 2024 í Reykjavík handsalaður. Eftir stoppið verður haldið af stað niður Templarastræti, út Vonarstræti og með fram Tjörninni og þaðan fara hestarnir á BSÍ þar sem reiðin endar um kl 16.30.

Landssamband Hestamannafélaga og Horses of Iceland hvetja alla til að koma með fjölskyldu og vini til að horfa á hesta og knapa fara um miðbæinn. Við hlökkum til að sjá ykkur!

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í reiðinni, mæta á BSÍ kl 14:00. Hestar skulu vera snyrtilegir sem og allur búnaður og eru knapar hvattir til að mæta í ullarpeysum. Endilega reynum að sameinast í bíla og kerrur.  Frekari upplýsingar um miðbæjarreiðina má fá hjá Jónínu Sif: joninasif@lhhestar.is

 

Fréttasafn

7. ágúst 2025
Þá er forkeppni í fimmgangi lokið, við áttum fimm fulltrúa, þrjá í fullorðinsflokki og tvo í ungmennaflokki.
7. ágúst 2025
Eftir yfirlit í flokki fimm og sex vetra kynbótahrossa standa þrjú af fjórum hrossum frá Íslandi efst í sínum flokki.
7. ágúst 2025
Kristján Árni og Sigursteinn standa efstir íslensku keppendanna
7. ágúst 2025
Árni Björn leiðir í tölti með miklum yfirburðum
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 6. ágúst 2025
Þá er forkeppni í slaktaumatölti lokið. Þar átti Ísland fjóra fulltrúa, þrjá í fullorðinsflokki og einn í ungmennaflokki.
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 6. ágúst 2025
Ísland landaði sínum fyrsta heimsmeistaratitli á HM 2025
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 6. ágúst 2025
Heimsmeistaramót Íslenska hestsins hófst á kynbótadómum.
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 4. ágúst 2025
Sig­ur­björn seg­ir alla hest­ana vera í góðu standi eft­ir ferðalagið. Hann bend­ir einnig á mik­il­vægi þess að styðja við bak liðsfé­lag­anna þegar keppn­in hefst á morg­un.
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 4. ágúst 2025
Heims­meist­ara­mót ís­lenska hests­ins hefst með form­leg­um hætti í fyrramálið og kynbótadómum.
Eftir Unnur Rún Sigurpálsdóttir 1. ágúst 2025
Nú er heldur betur farið að styttast í að mótið hefjist
Lesa meira