Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun veturinn 2023-2024.

3. október 2023

Hæfileikamótun LH er fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára og yfirþjálfari Hæfileikamótunar er Sigvaldi Lárus Guðmundsson reiðkennari.

Þróun hæfileikamótunar LH hefur verið mikil undanfarin ár en á þessu starfsári mun starfsemin stækka enn frekar en áður og verður boðið upp á tvo hópa í hæfileikamótun.

Þetta er gert til þess að veita fleiri efnilegum knöpum tækifæri til þess að komast í umhverfi hæfileikamótunar, fjölga og stækka starfið og á sama tíma ná að veita hverjum knapa enn meiri þjónustu en áður.

Vetrarstarfið hefst á ferð norður að Háskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem nemendur fá innsýn í námið á Hólum, sýnikennslu og reiðkennslu hjá kennurum við skólann ásamt því að fá helgi til þess að kynnast og hrista saman hópinn.

Eftir áramót eru tvær vinnuhelgar í kennslu á eigin hestum undir umsjón yfirþjálfara ásamt því að hver knapi skilar tvisvar á vortímabilinu myndbandi af sér með keppnishesti sínum á velli og fær endurgjöf og aðstoð með þjálfun inn í mótin. Þetta gildir fyrir vormótin annarsvegar og svo kringum Íslandsmót hins vegar.

Þar að auki taka iðkendur hæfileikamótunar þátt í viðburðum á vegum landsliðsins í hestaíþróttum.

Í hæfileikamótun eru ungir og efnilegir framtíðarknapar Íslands. Markmið hæfileikamótunar LH er að hjálpa þeim að verða betri þjálfarar og reiðmenn en einnig að kynnast landsliðsumhverfinu og verða að flottum fyrirmyndum fyrir aðra unga knapa.

Tekið er á móti umsóknum í hæfileikamótun LH 2023-2024 á vef LH.

Umsóknarfrestur er 10. október 2023

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira