Sex mánuðir til stefnu

8. febrúar 2024

Norðurlandamótið í hestaíþróttum hefst eftir sex mánuði. Mótið stendur yfir dagana 8.-11. ágúst í Herning í Danmörku. Þar munum við fá að sjá bestu hesta Norðurlandanna keppa í íþrótta og gæðingakeppni. Keppnissvæðið í Herning er marglofað og er ekki við öðru að búast en að þar muni hver stórsýningin reka aðra. Á svæðinu verður spennandi markaðstorg, veitingasölur, leikvöllur fyrir börn auk þess sem á dagskráin eru fræðsluerindi, tónlistar atriði og fleira. Miðasala er hafin og fá þeir sem tryggja sér miða í tíma góðan afslátt. Miðinn veitir aðgang að öllu svæðinu fyrir utan hesthúsin. Umhverfi mótsins er með besta móti og stutt í ýmsa þjónustu þar með talið Legoland og Lalandia.

Dómarar mótsins eru:

Gæðingakeppni

Yfirdómari : Valdimar M. Ólafsson frá Íslandi.

Stefán Ágústsson frá Íslandi.

Mathilde Hjort frá Noregi.

Nina Bergholt frá Svíþjóð.

Amalie Haubo-San Pedro frá Danmörku.

 

Íþróttakeppni:

Yfirdómari : Stefan Hackauf frá Þýskalandi.

Dómarar valdir af þátttökuþjóðunum

Peter Häggberg frá Svíþjóð.

Anna Andersen frá Finnlandi

Rune Svendsen frá Noregi.

Lise Galskov frá Danmörku.

Malin Elmgren frá Svíþjóð valin af Færeyjum.

Halldór Gunnar Victorsson frá Íslandi,

 

Dómarar valdir af skipuleggjendum

Sigríður Pétursdóttir frá Íslandi.

Birgit Quasnitschka frá Þýskalandi.

Lise Brouér frá Danmörku.

Andreas Windsio frá Þýskalandi.

 

Nælu þér í miða á afslætti til 1. mars:
https://www.sporti.dk/en/ticket.php?e=116&v=e-i

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira