Síðustu forvöð til að tryggja sér toll í stóðhestaveltunni!

27. maí 2024

Dregið verður í stóðhestaveltu landsliðsins á fimmtudaginn 30. maí, örfáir miðar eru eftir og því um að gera að stökkva til og tryggja sér miða. Að taka þátt í stóðhestaveltunni eykur ekki bara spenningin í ræktunarstarfinu heldur er styrkurinn ómetanlegur fyrir landsliðin okkar sem munu halda á Norðurlandamót í hestaíþróttum í ágúst.

Glæsilegir hestar eru í veltunni, margir af okkar allra mest spennandi hestum og þökkum við stóðhestaeigendum kærlega fyrir stuðninginn. 

Verð á hverjum miða í stóðhestaveltunni er 65.000 kr. hverjum miða fyglir einn tollur girðinga- eða húsgjald er ekki innifalið. Endilega kynnið ykkur hestana sem í boði og nælið ykkur í miða í vefverslun LH .

 

Sindri frá Hjarðartúni 8,99 - Tollinn gefa Einhyrningur ehf., Bjarni Elvar Pétursson, Kristín Heimisdóttir
Þráinn frá Flagbjarnarholti 8,95 - Tollinn gefur Þráinsskjöldur ehf.
Rauðskeggur frá Kjarnholtum 8,87 -
Tollinn gefur Magnús Einarsson
Kolskeggur frá Kjarnholtum I 8,86 -
Tollinn gefur Magnús Einarsson

Þór frá Torfunesi 8,80 - Tollinn gefur Torfunes ehf
Atlas frá Hjallanesi 8,76 -
Tollinn gefur Atlasfélagið 1660 ehf

Hylur frá Flagbjarnarholti 8,68 - Tollinn gefur Heimahagi Hrossarækt ehf
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,63 - Tollinn gefur Adríanfjélagið ehf.
Gangster frá Árgerði 8,63 - Tollinn gefa Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson
Skarpur frá Kýrholti 8,63
- Tollinn gefa Fleming Fast og Gitte Fast Lambertsen
Guttormur frá Dallandi 8,61 - Tollinn gefur Hestamiðstöðin Dalur ehf.
Tumi frá Jarðbrú 8,61 - Tollinn gefur Maríanna Gunnarsdóttir
Vigri frá Bæ 8,59 - Tollinn gefur Höfðaströnd ehf.
Pensill frá Hvolsvelli 8,55 - Tollinn gefa Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir
Ljósvaki frá Valstrýtu 8,54 - Tollinn gefur Guðjón Árnason
Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga 8,54 - Tollinn gefur Sigurður Sigurðarson
Tindur frá Árdal 8,53 - Tollinn gefa Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos
Húni frá Ragnheiðarstöðum 8,52 - Tollinn gefa Fleming Fast og Gitte Fast Lambertsen

Sindri frá Lækjamóti II 8,52 - Tollinn gefur Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
Korgur frá Garði 8,51 - Tollinn gefur Jón Sigurjónsson
Safír frá Mosfellsbæ 8,51 - Tollinn gefa Ganghestar
Sólfaxi frá Herríðarhóli 8,51 - Tollinn gefa Grunur ehf./Egger-Meier Anja/Kronshof GbR
Arður frá Brautarholti 8,49 - Tollinn gefur Bergsholt sf og HJH Eignarhaldsfélag ehf
Ljúfur frá Torfunesi 8,49 - Tollinn gefur Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Þytur frá Skáney 8,49 - Tollinn gefur Bjarni Marínósson
Blesi frá Heysholti 8,48 - Tollinn gefur Guðrún Lóa Kristinsdóttir
Hlekkur frá Saurbæ 8,48 - Tollinn gefur Emilie Victoria Bönström
Aðalsteinn frá Íbishóli 8,47 - Tollinn gefur Magnús Bragi Magnússon
Knár frá Ytra-Vallholti 8,47 - Tollinn gefa Egger-Meier Anja, Islandpferdehof Weierholz og Bjarni Jónasson
Askur frá Holtsmúla I 8,44 - Tollinn gefur Anne Krishnabhakdi
Gauti frá Vöðlum 8,44 - Tollinn gefa Margeir Þorgeirsson og Ólafur Brynjar Ásgeirsson
Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr. 8,43 - Tollinn gefur Boði ehf.
Muninn frá Litla-Garði 8,42 - Tollinn gefa Herdís Ármannsdóttir og Stefán Birgir Stefánsson
Valíant frá Garðshorni á Þelamörk 8,42 - Tollinn gefur K.Ó. Kristjánsson
Ottesen frá Ljósafossi 8,40 - Tollinn gefur Björn Þór Björnsson
Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum 8,38 - Tollinn gefur Helgi Jón Harðarson
Hugur frá Hólabaki 8,38 - Tollinn gefa Georg Kristjánsson og Sigurður Sigurðsson
Agnar frá Margrétarhofi 8,37 - Tollinn gefur Margrétarhof hf
Vökull frá Efri-Brú 8,37 - Tollinn gefa Hafsteinn Jónsson og Hestar ehf
Ölur frá Reykjavöllum 8,37 - Tollinn gefa Einhyrningur ehf. og Hans Þór Hilmarsson
Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 8,35 - Tollinn gefur Vilhjálmur Þórarinsson
Eldur frá Bjarghúsum 8,35 - Tollinn gefa Hörður Óli Sæmundarson og Dhr. R. Pool
Sókrates frá Skáney 8,35 - Tollinn gefa Hestaland og Kristján Baldursson
Þinur frá Enni 8,34 - Tollinn gefur Ástríður Magnúsdóttir
Kór frá Skálakoti 8,33 - Tollinn gefur Guðmundur Jón Viðarsson
Viskusteinn frá Íbishóli 8,32 - Tollinn gefa Jón Ársæll Bergmann ofl.
Útherji frá Blesastöðum 8,32 - Tollinn gefa Bragi Guðmundsson, Sveinbjörn Bragason, Valgerður Þorvaldsdóttir og Þórunn Hannesdóttir
Sigur frá Stóra-Vantsskarði 8,29 - Tollinn gefur Sigur frá Stóra-Vatnsskarði ehf
Auga-Steinn frá Árbæ 8,27 - Tollinn gefa Maríanna Gunnarsdóttir ofl.
Lazarus frá Ásmundarstöðum 8,23 - Tollinn gefa Herdís Kristín Sigurðardóttir og Durgur ehf.
Frosti frá Hjarðartúni 8,21 - Tollinn gefur Einhyrningur ehf.
Sproti frá Vesturkoti 8,21 - Tollinn gefur HJH Eignarhaldsfélag ehf.
Draumur frá Feti 8,20 - Tollinn gefur Fet ehf
Rammi frá Búlandi 8,18 - Tollinn gefur Ólafur Örn Þórðarson o.fl.
Lexus frá Vatnsleysu 8,15 - Tollinn gefur Hestar ehf.
Amadeus frá Þjóðólfshaga 8,15 - Tollinn gefur Sigurður Sigurðarson
Sparon frá Íbishóli 8,11 - Tollinn gefur Íbishóll ehf.
Abel frá Skáney 8,06 - Tollinn gefur Haukur Bjarnason
Hákon frá Ragnheiðarstöðum 7,97 og 1. verðl. f. afkvæmi - Tollinn gefur Ræktunarfélagið Hákon ehf
Baldvin frá Margrétarhofi - Tollinn gefur Margrétarhof hf.
Kópur frá Hrafnshóli - Tollinn gefa Egger-Meier Anja og Grunur ehf.

Fréttasafn

2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
Lesa meira