Sigurlína Erla er LH félagi ársins

30. nóvember 2024

 Í dag á menntadegi landsliðsins var félagi ársins heiðraður. Félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar.

Stjórn LH óskaði eftir tilnefningum frá aðildarfélögum LH að félaga ársins, ásamt rökstuðningi fyrir valinu og var það í höndum félagsmanna að kjósa félaga ársins.

 

Félagi ársins árið 2024 er Sigurlína Erla Magnúsdóttir úr Skagfirðingi

Sigurlína hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins í mörg ár. Hún kom inn í stjórn Skagfirðings árið 2021, Meistaradeildar KS árið 2020 og stjórn reiðhallarinnar á Sauðárkróki (Flugu) árið 2022 sem formaður og og er enn í dag.

Sigurlína er “JÁ” manneskja, hún er alltaf boðin og búin til að aðstoða hvar sem þess gerist þörf. Hún er einn af drifkröftum í reiðhöllinni í Skagafirði ásamt því að standa vaktirnar í sjoppunni við fjáröflunarstarfið. Sigurlína hefur staðið vaktina við marga viðburði og mót á vegum Skagfirðings þar á meðal framkvæmdanefndum fyrir Íslandsmót og Landsmót.

Hún er jákvæð, drífandi og mjög svo óeigingjörn á sinn tíma fyrir félagið.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira