Skeiðstrákarnir okkar stóðu sig vel!

9. ágúst 2025

Kristján Árni - Heimsmeistari

Kristján Árni Birgisson & Krafla frá Syðri-Rauðalæk eru heimsmeistarar í 250m skeiði í ungmennaflokki á tímanum 22.38 sekúndum   Matthías Sigurðsson og Magnea frá Staðartungu bættu tíma sinn í dag og hlupu á tímanum 24.49 sekúndum.


Það var mikil spenna fyrir lokasprettunum og var ekkert gefuð eftir! Sigursteinn Sumarliðason hlaut silfurverðlaun í 250m skeiði með Krókus frá Dalbæ en þeir fóru á frábærum tíma eða 21.97 sekúndum eftir frábæra spretti! Í sjötta sæti varð Daníel Gunnarsson með Kló frá Einhamri 2 en þau náðu þremur fínum sprettum og þeirra besti tími í þetta skiptið 22.54 sekúndur  Hinrik Bragason og Trú frá Árbakka hlupu á tímanum 22.64 sekúndum en þess má geta að þetta er frumraun þeirra í 250m


Innilega til hamingju  Á morgun munum við svo sjá þá alla aftur í 100m skeiði.





Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira