Yfirliti lokið í flokki sjö vetra hrossa

8. ágúst 2025

Niðurstöður úr kynbótasýningum sjö vetra og eldri hrossa


Yfirliti sjö vetra og eldri hrossa er nú lokið. Þar eigum við tvo fulltrúa þau Eind frá Grafarkoti, sýnandi, Bjarni Jónasson og Hljóm frá Auðsholtshjáleigu, sýnandi Árni Björn Pálsson. Eind frá Grafarkot hlaut í aðaleinkunn 8.43 sem er þriðja sæti í þessum flokki. Eigendur hennar eru Bjarni Jónasson og Anja Egger en ræktuð af Herdísi Einarsdóttur. Faðir Eindar er Kiljan frá Steinnesi og móðir er Kara frá Grafarkoti.

Hæst dæmdi hesturinn í þessum flokki er Hljómur frá Auðsholtshjáleigu. Hann er ræktaður af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur en eigandi er Stutteri Egebjerggård I/S. Faðir Hljóms er Organisti frá Horni og móðir er Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu fyrir sköpulag hlaut hann 8,76, fyrir hæfileika 8,78 og í aðaleinkunn 8,77. Sýnandi hans var Árni Björn Pálsson.







Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira