Skráningu lokið á HM í hestaíþróttum

27. júlí 2023

Nú er heldur betur að styttast í Heimsmeistaramót íslenska hestsins sem að þessu sinni fer fram í Hollandi 8.-13. ágúst. Ferlið að velja landslið til leiks fyrir Íslands hönd var heilmikið og náði hápunkti sínum á Íslandsmótinu á Selfossi fyrr í sumar.

Það voru margir knapar og hestar í boði og að lokum var liðið tilkynnt um miðjan júlí. Nú er skráningarfrestur liðinn og öll lönd hafa því skráð staðfest lið til leiks ásamt varaknöpum og því er fróðlegt að skoða stöðu okkar liðs nú á leiðinni inn í mótið.

Ríkjandi heimsmeistarar

Tveir ríkjandi heimsmeistarar munu keppa fyrir Íslands hönd á mótinu og það eru þeir Benjamín Sandur Ingólfsson og Teitur Árnason.

Benjamín kom sá og sigraði á síðasta móti í gæðingaskeiði Ungmenna. Hann er nú kominn í fullorðinsflokk og fer því í titilvörn sína í djúpu lauginni. Hann mætir með Júní frá Brúnum í fimmgangsgreinar á mótinu. Júní er reyndur fimmgangshestur sem Benjamín er nýkominn með í hendur. Þeir eru skráðir í fimmgang, tölt og gæðingaskeið.

 Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum ll

Teitur Árnason er ríkjandi heimsmeistari í gæðingaskeiði fullorðinna frá því 2019. Hann mætir með Drottningu frá Hömrum II sem á dögunum varð Íslandsmeistari hjá honum í 100 m. skeiði á frábærum tíma. Teitur er  þrátt fyrir ungann aldur, einn af okkar allra reynslumestu knöpum á stóra sviðinu með landsliði Íslands og það verður gaman að sjá þau Teit og Drottningu í skeiðinu í Hollandi.

Guðmundur Björvinsson er einnig ríkjandi heimsmeistari en hann ákvað að nýta ekki pláss sitt í liðinu að þessu sinni. 

 

U-21 hópurinn

Ísland sendir fimm knapa til leiks í ungmennaflokki á mótinu. Ungmenni á HM eru á aldrinum 16-21 árs og það er engum ofsögum sagt þegar því er haldið fram að annar eins hópur af ungmennum hefur aldrei verið í boði hér á landi og það var erfitt verk fyrir Heklu Katharínu landsliðsþjálfara að velja í hópinn.

Herdís Björg Jóhannsdóttir á Kvarða frá Pulu keppir alla jafna í unglingaflokki á Íslandi. Hún er 16 ára og er því yngsti knapi liðsins. Herdís og Kvarði hafa átt ótrúlega góðu gengi að fagna í tölti á árinu og náð frábærum árangri. Hún keppir í tölti T1 á mótinu.

 Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum lll

Benedikt Ólafsson er skráður til leiks á Leiru-Björk frá Naustum III. Þau eru ríkjandi Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði ungmenna og hafa verið það síðastliðin þrjú ár. Benedikt og Leira-Björk hafa á þessum árum vaxið gríðarlega í greininni og á Íslandsmótinu náðu þau árangri sem er sjaldséður í yngri flokkum. Gæðingaskeiðið er snemma á dagskrá á HM, og er í dagskránni fyrsta grein mótsins. Bensi og Leira-Björk ætla sér ekki að vera í fríi út vikuna og eru auk gæðingaskeiðsins skráð í fimmgang, slaktaumatölt og 100 m skeið.

 

 Glódís Rún Sigurðardóttir og Salka frá Efri-Brú

Ein af stórstjörnum ársins í fimmgangi hér á landi er án efa Glódís Rún Sigurðardóttir á henni Sölku frá Efri-Brú. Þær Glódís og Salka eru skráðar í fimmgang og tölt T1 á HM. Glódís kom fyrst fram með hryssuna í Meistaradeild Líflands í vetur þar sem þær komust á verðlaunapall strax á fyrsta móti og vöktu gríðarlega athygli. Þær fylgdu svo eftir góðum árangri með sigrum á Reykjavíkurmeistaramóti og Íslandsmóti í fimmgangi. Það verður því mjög spennandi að sjá þær etja kappi við sterkustu fimmgangshrossin úti í heimi.

 Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhól

Jón Ársæll Bergmann er annar knapi sem sannarlega hefur stimplað sig inn í fremsta flokk knapa á Íslandi í ár. Hann er skráður til leiks í tölt og fjórgang á Frá frá Sandhól. Jón Ársæll og Frár komu fyrst fram saman í vor og náðu strax að taka pláss á sviðinu í fjórgangi ungmenna. Þeir hafa svo vaxið saman með hverju mótinu og urðu Íslandsmeistarar í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum í ungmennaflokki.

 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi

Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi eru skeiðgarpar íslenska ungmennaliðsins í 100 m skeiði og 250 m skeiði. Þær stöllur hafa náð frábærum tímum í 100 m skeiði á árinu og sýnt frábæran stöðugleika í greininni. Ylfa er öskurfljót á skeiði og Sigríður Ingibjörg er öflugur skeiðknapi svo þeirra forsendur inn í mótið eru virkilega spennandi í báðum greinum.

 

A-landslið fullorðinna

 Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum

Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum eru orðin algjörir sérfræðingar í gæðingaskeiði. Þau hafa á undanförnum árum verið nálægt því ósigrandi og eru ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni undanfarin ár. Þau hafa verið að ná einkunum uppá 9 og þar yfir sem er heimsklassa árangur.  Elvar og Fjalladís eru skráð í gæðingaskeið, 100 m skeið og 250 m skeið á mótinu.

 Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum

Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum eiga besta tíma ársins í 250 m skeiði á Íslandi. Þeir eru öskurfljótir þegar allt virkar fara fáir framúr þeim félögum. Þeir eru skráðir til leiks í 100 m  skeiði og 250 m skeiði.

 

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi eru án efa eitt af stjörnupörum íslenskrar hestamennsku undanfarin ár. Þau hafa verið að keppa saman undanfarin ár og farið vaxandi með hverju árinu. Hanna Magga og Bárður hafa orðið Íslandsmeistarar í fjórgangi þrjú ár í röð, og urðu á liðnu Íslandsmóti Íslandsmeistarar í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum. Þau eru skráð í tölt og fjórgang á mótinu og sitja um þessar mundir í efsta sæti heimslistans í tölti.

 Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhól

Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli hafa í nokkur ár staðið í fremstu röð í fimmgangi á Íslandi. Sara á eina af hæstu einkunum ársins í fimmgangi og varð Íslandsmeistari í greininni 2022. Þau Flóki eru samstillt par í allra fremstu röð og eru skráð til leiks í fimmgangi.

 Viðar Ingólfsson og Þór frá Stóra-Hofi

Viðar Ingólfsson er reynslumikill knapi og hefur verið í fremstu röð okkar keppnisknapa um árabil. Hann er skráður í tölt og fjórgang á Þór frá Stóra-Hofi. Viðar og Þór hafa verið hópi fremstu para á landinu í tölti síðastliðin tvö ár og eru silfurhafar í greininni frá Íslandsmótinu fyrr í sumar.

 Þorgeir og Goðasteinn Mynd: Hrefna María Ómarsdóttir

Þorgeir Ólafsson og Goðasteinn frá Haukagili í Hvítársíðu skutust fram á sjónarsviðið í meistaradeildinni í vetur þegar þeir komu sér á verðlaunapall á sínu fyrsta móti saman. Þorgeir er ungur og upprennandi knapi sem er heldur betur farinn að láta að sér kveða meðal okkar fremstu knapa. Þeir Goðasteinn sigruðu í fimmgangi á Reykjavíkurmeistaramótinu fyrr í sumar og eru silfurhafa í samanlögðum fimmgangsgreinum frá Íslandsmótinu.

 Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri

Daníel Gunnarsson er öflugur knapi í skeiði og hefur á undanförnum árum staðið í fremstu röð reiðmanna í skeiðkappreiðum á Íslandi. Hann er nú kominn inn í landsliðshópinn á skeiðvængnum með Einingu frá Einhamri. Daníel og Eining hafa náð góðum árangri í 250 m skeiði og 100 m skeiði og eru meðal alfljótustu skeiðpara í heiminum í dag. Þau eru skráð til leiks í báðum greinum á HM. 

 

Kynbótahross

Kynbótasýningar mótsins fara ögn öðruvísi farm að þessu sinni en áður þar sem kynbótahrossin halda sínum sköpulagsdómum frá fyrri sýningum sumarsins en fara í hæfileikadóm á mótinu.

Ísland sendir 6 kynbótahross til sýningar á mótinu og öll eru hátt dæmd hross og hópurinn því virkilega sterkur.

5 vetra hryssa: Ársól frá Sauðanesi, knapi Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir

5 vetra stóðhestur: Höfði frá Bergi, knapi Þorgeir Ólafsson

6 vetra hryssa: Hrönn frá Fákshólum, knapi Jakob Svavar Sigurðsson

6 vetra stóðhestur: Geisli frá Árbæ, knapi Árni Björn Pálsson

7 vetra og eldri hryssa: Katla frá Hemlu II, knapi Árni Björn Pálsson

7 vetra og eldri stóðhestur: Hersir frá Húsavík, knapi Teitur Árnason

Það er því alveg ástæða til þess að vera spennt og full tilhlökkunar að fylgjast með okkar sterkustu knöpum etja kappi við þá bestu á heimsvísu. Mótið fer fram í fábærum aðstæðum í Oirschot í Hollandi í nágrenni við Einhoven. Eindhoven er frábær borg heim að sækja, vinaleg og gestvæn. Mikil aðsókn er á mótið frá öllum aðildarlöndum Feif og þar fyrir utan eru streymismöguleikar fyrir þá sem vilja fylgjast með því heiman frá.  RÚV sendir tökulið með íslenska hópnum út og verður með samantektarþætti frá mótinu ásamt því að fjalla um það í fréttum og útvarpi á meðan á því stendur. 

Fylgist vel með og styðjið okkar fólk, nú gerum við þetta saman með stæl.

 

Fréttasafn

2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
Lesa meira