Stóðahestaveltan - skemmtilegasta fjáröflun sem um getur!

12. apríl 2025

Stórsýning landsliðs Íslands í hestaíþróttum, Allra sterkustu , verður haldið í Samskipa-reiðhöllinni í Spretti laugardagskvöldið 19. apríl nk. Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og um 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu. LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.

Miðsala í stóðhestaveltunni verður á ALLRA STERKUSTU og á vefnum, miðaverð er 70.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.

 

 

 

Við kynnum fyrstu 10 stóðhestana til leiks:

Fréttasafn

Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 23. júní 2025
Nú styttist heldur betur í HM í hestaíþróttum, einungis eru 42 dagar þar til stórhátíðin hefst!
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 19. júní 2025
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum verður haldið á Brávöllum, Selfossi dagana 25.-29. júní nk. Nú liggur ljóst fyrir hversu margir hafa náð lágmörkum inn á mótið.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 19. júní 2025
Eins og greint var frá á dögunum fylgdust landsliðsþjálfararnir grant með framvindu mála á Reykjarvíkurmeistaramóti, þar sem þeir leggja nú drög að loka hóp sínum á HM í Sviss.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 16. júní 2025
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru hestamenn!  Það er ekki úr vegi á þessum hátíðardegi, að líta til baka og rifja upp gamlar og góðar reiðleiðir og hestaferðir, enda fátt þjóðlegra en að ferðast um landið á góðum hestum.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 16. júní 2025
Glæsilegir Topreiter landsliðsbolir til sölu.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 14. júní 2025
Nú fer fram Reykjavíkurmeistaramót Fáks. Mótið er stærsta hestaíþróttamót sem haldið hefur verið á Íslandi, en fjöldi skráninga voru yfir þúsund. Við brautina sitja landsliðsþjálfarar Íslands, Hekla Katharína Kristinsdóttir og Sigurbjörn Bárðarson, og fylgjast náið með keppendum sem eru líklegir til að ná árangri – ekki aðeins hér heima, heldur einnig á stærsta sviðinu, HM í hestaíþróttum.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 12. júní 2025
Að fara með hesta á Heimsmeistaramót er stórt verkefni og að mörgu að huga, en eitt er það sem er allra mikilvægast og það er að koma hestunum frá Íslandi og á mótsstað erlendis. Frá árinu 1986 hefur Gunnar Arnarson ehf aðstoðað Landssamband hestamannafélaga við útflutning á hestum sem eru á leið á stórmót erlendis. Gunnar Arnarson ehf hefur styrkt LH um kostnað sem hlýst af umsýslu við útflutninginn auk þess að gefa Landsliðinu fjölda folatolla í gegnum árin.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 11. júní 2025
Öryggisnefnd LH minnir á mikilvægi þess að yfirfara reiðtygin.
Eftir Jónína Sif Eyþórsdóttir 6. júní 2025
Skógarhólar hinn geysi vinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftinu á síðustu misserum og tekur nú enn betur á móti gestum.
Eftir Berglind Karlsdóttir 5. júní 2025
Ný og glæsileg reiðhöll var vígð á Sörlastöðum í Hafnarfirði þann 4. júní.
Lesa meira