Stóðhestavelta landsliðsins - Allra sterkustu

25. apríl 2023

Stórsýning landsliðs Íslands í hestaíþróttum,  Allra sterkustu - leiðin að gullinu , verður haldið í TM-reiðhöllinni í Víðidal laugardagskvöldið 6. maí nk. Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og verða 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu. LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.

Miðsala í stóðhestaveltunni hefst föstudaginn 5. maí í netverslun á vef LH og er miðaverð 65.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða.

Við kynnum næstu 10 stóðhesta til leiks:

Sólon frá Skáney 8,48
Sólon hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2011 og er farsæll kynbótahestur. Hæst dæmda afkvæmi hans er Skýr frá Skálakoti. Myndband af Sóloni

Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum 8,47
Álfgrímur hefur hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir vilja og geðslag og fet og 9,0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og hægt tölt.   Álfgrímur var í úrslitum í b-flokki gæðinga á Landsmóti 2022. Myndband af Álfgrími

Kolskeggur frá Kjarnholtum 8,86
Kolskeggur hefur hlotið í kynbótadómi 8,74 fyrir sköpulag, þar af 9,5 fyrir höfuð og samræmi, 9,0 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend og 8,94 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir skeið og 9 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Kolskeggur er sigurvegari í a-flokki gæðinga á Landsmóti 2022. Myndband af Kolskeggi

Nemó frá Efra Hvoli 8,48
Nemó hefur hlotið í kynbótadómi 8,48 í aðaleinkunn, þar af 8,59 fyrir sköpulag og 8,42 fyrir hæfileika. Hann hefur hlotið 9,0 fyrir greitt stökk og samstarfsvilja, höfuð, háls og samræmi.   Myndband af Nemó

Húni frá Ragnheiðarstöum 8,18
Húni er ungur og efnilegur kynbótahestur sem var í verðlaunasæti í flokki 4ra vetra hesta á landsmóti 2022. Hann hefur m.a. hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir háls, samræmi, tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. Myndband af Húna

Kór frá Skálakoti 8,33
Kór er ungur og efnilegur stóðhestur, hann hefur hlotið fyrir sköpulag 8,54 og 8,22 fyrir hæfileika, þar af 9,0 fyrir tölt, brokk, greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Myndband af Kór

Prins frá Vöðlum 8,45
Prins fór í 8,45 í aðaleinkunn í sinni fyrstu sýningu sem er glæsilegt, þá aðeins 5 vetra. Hann náði 8,69 fyrir hæfileika, 9 fyrir tölt, 9 fyrir samstarfsvilja og 9 fyrir fet. Hér er á ferðinni hæfileikaríkur hestur sem er afkomandi hátt dæmdra gæðinga.  Myndband af Prins

Grímur frá Skógarási 8,25
Grímur hefur átt farsælan keppnisferil í fjórgangi og tölti. Hann hefur hlotið 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt stökk og hægt tölt í kynbótadómi.  Myndband af Grími

Silfursteinn frá Horni I 8,47
Silfursteinn hefur hlotið í kynbótadómi 8,39 fyrir sköpulag, þar af 9 fyrir háls/herðar/bóga og samræmi, og 8,52 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, samstarfsvilja og fet. Myndband af Silfursteini

Seðill frá Árbæ 8,75
Seðill hefur hlotið 8,79 fyrir sköpulag, þar af 9 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend, samræmi og hófa og 8,72 fyrir hæfileika, 9 fyrir brokk, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. Seðill var í verðlaunasæti í flokki stóðhesta 7vetra og eldri á Landsmóti 2022. Myndband af Seðli

Fréttasafn

16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
Lesa meira