Stóðhestavelta landsliðsins heildarlisti hesta
3. apríl 2026
Heildarlisti hesta í stóðhestaveltu landsliðsins
Miðasala í stóðhestaveltu landsliðsins hefst kl. 17.00, laugardaginn 4. apríl, á Sörlastöðum og í vefverslun LH!
Miðaverð er kr. 70.000, einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.
Við þökkum eigendum hestanna hjartanlega fyrir ómetanlegt framlag til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum.
ÁFRAM ÍSLAND!
Heildarlisti hesta í stóðhestaveltunni, aðaleinkunn og eigendur:
- Sindri frá Hjarðatúni 8,99 Einhyrningur ehf. / Bjarni Elvar Pétursson / Kristín Heimisdóttir
- Þráinn frá Flagbjarnarholti 8,95 Þráinsskjöldur ehf.
- Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 8,94 Gangmyllan, Olil Amble, Bergur Jónsson
- Kolskeggur frá Kjarnholtum 8,86 Magnús Einarsson
- Atlas frá Hjallanesi 8,76 Atlasfélagið 1660 ehf
- Seðill frá Árbæ 8,75 Maríanna Gunnarsdóttir
- Gandi frá Rauðalæk 8,72 Dysterud Breeding AS
- Frosti frá Hjarðartúni 8,70 Einhyrningur ehf. / Bjarni Elvar Pétursson / Kristín Heimisdóttir
- Skýr frá Skálakoti 8,70 Guðmundur Jón Viðarsosn og Jakob Svavar Sigurðsson
- Roði frá Lyngholti 8,69 Bergrún Ingólfsdóttir
- Hylur frá Flagbjarnarholti 8,68 Heimahagi Hrossarækt ehf
- Forkur frá Breiðabólsstað 8,67 Elísabet Halldórsdóttir / Ólafur Flosason
- Valíant frá Garðshorni á Þelamörk 8,66 Ólafur Gunnarsson / Katla Sif Snorradóttir
- Sindri frá Lækjamóti II 8,64 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
- Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,63 Sigurður Örn Ágústsson, Sigurður Levy og Brynjólfur Stefánsson
- Náttfari frá Varmalæk 8,62 Bo Hansen
- Atli frá Efri-Fitjum 8,61 Magnús Andrésson / Tryggvi Björnsson
- Glampi frá Skeiðháholti 8,60 Tanja Rún Jóhannsdóttir / Vilmundur Jónsson
- Draupnir frá Kverk 8,59 Sigurþór Stefánsson
- Agnar frá Margrétarhofi 8,59 Margrétarhof hf
- Skugga-Sveinn frá Austurhlíð 2 8,58 Ólafur Gunnarsson / Kristín Sigríður Magnúsdóttir / Trausti Hjálmarsson
- Feykir frá Stóra-Vatnsskarði 8,57 Dominik Mueser ehf
- Tindur frá Árdal 8,57 Hannes Sigurjónsson / Inga Cristina Campos
- Svartur frá Vöðlum 8,56 Ástríður Lilja Guðjónsdóttir / Margeir Þorgeirsson
- Skuggi frá Sumarliðabæ 8,56 Svarthöfði-Hrossarækt ehf.
- Gýmir frá Skúfslæk 8,55 Lárus Finnbogason
- Kór frá Skálakoti 8,55 Guðmundur Jón Viðarsson
- Ljósvaki frá Valstrýtu 8,54 Guðjón Árnason/Árni Björn Pálsson
- Njörður frá Hrísakoti 8,54 Sif Matthíasdóttir
- Suðri frá Varmalandi 8,53 Birna M. Sigurbjörnsdóttir / Sigurgeir F. Þorsteinsson
- Svarti-Skuggi frá Pulu 8,53 Jóhann Kristinn Ragnarsson / Theódóra Þorvaldsdóttir
- Viktor frá Hamarsey 8,53 Hannes Sigurjónsson / Inga Cristina Campos
- Víkingur frá Hofi I 8,51 Austurás hestar ehf.
- Safír frá Mosfellsbæ 8,51 Dhr. M. van Leeuwen / Mw. N. Hofkens
- Spaði frá Fornusöndum 8,50 Finnbogi Geirsson
- Kastor frá Garðshorni 8,48 Konráð Valur Sveinsson
- Knár frá Ytra-Vallholti 8,47 Bjarni Jónasson / Anja Egger-Meier
- Bylur frá Geitaskarði 8,46 Brynjólfur Stefánsson / Sigurður Örn Ágústsson
- Sjafnar frá Skipaskaga 8,45 E. Alfreðsson slf.
- Smári frá Sauðanesi 8,45 Daniel Gunnarsson
- Kveldúlfur frá Fákshólum 8,45 Jakob Svavar Sigurðsson / Benedikt Þór Kristjánsson
- Ísar frá Vatnsleysu 8,45 Hestar ehf.
- Askur frá Holtsmúla 1 8,44 Miriam Dehnelt / Ásmundur Ernir Snorrason
- Andvari frá Kerhóli 8,44 Austurás hestar ehf.
- Sólstafur frá Bakkakoti 8,43 Hestvit ehf.
- Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr. 8,43 Boði ehf.
- Loftur frá Kálfsstöðum 8,42 Kálfsstaðir
- Dani frá Hjarðartúni 8,41 Anja Egger-Meier
- Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum 8,41 Gangmyllan, Olil Amble, Bergur Jónsson
- Álfaskeggur frá Kjarnholtum 8,40 Daniel Gunnarsson / G. Birnir Ásgeirsson
- Abel frá Skáney 8,40 Haukur Bjarnason
- Hengill frá Hestkletti 8,40 Austurdalur ehf, og Hestklettur ehf.
- Króli frá Skipaskaga 8,39 Skipaskagi ehf. / Benjamín Sandur Ingólfsson
- Hugur frá Hólabaki 8,38 Georg Kristjánsson, Sigurður Sigurðsson
- Stormur frá Rauðalæk 8,38 Takthestar ehf.
- Kjalar frá Hvammi I 8,37 Erna Óðinsdóttir / Helgi Kjartansson
- Knörr frá Ketilsstöðum 8,37 Gangmyllan, Olil Amble, Bergur Jónsson
- Vökull frá Efri-Brú 8,37 Hestar ehf.
- Heiður frá Eystra-Fróðholti 8,36 Ársæll Jónsson
- Eldur frá Bjarghúsum 8,35 Hörður Óli Sæmundsson / Jessie Huijbers
- Fáfnir frá Miðkoti 8,35 Ólafur Þórisson / Sarah Maagaard Nielsen
- Spennandi frá Fitjum 8,35 Ragnhildur Halldórsdóttir / Valdimar Bjarnason / Rósanna Valdimarsdóttir
- Kóngur frá Flugumýri 8,34 Eyrún Ýr Pálsdóttir
- Kvarði frá Hofi 8,34 Eline Manon Schrijver / Jón Gíslason / Viðar Ingólfsson
- Þinur frá Enni 8,34 Ástríður Magnúsdóttir / Viktoría Huld Hannesdóttir
- Fleygur frá Geitaskarði 8,32 Sigurður Örn Ágústsson
- Gustur frá Efsta-Seli 8,32 Bertha María Waagfjörð og Einar Ingason
- Viskusteinn frá Íbishóli 8,32 Elísabet María Jónsdóttir
- Einir frá Enni 8,30 Finnbogi Bjarnason
- Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 8,29 Stóðhestaval ehf.
- Hvarmur frá Brautarholti 8,28 Snorri Kristjánsson og Blesi ehf.
- Leiknir frá Ásholti 8,27 Ólafur Brynjar Ásgeirsson
- Eldjárn frá Syðri-Gegnishólum 8,24 Gangmyllan, Olil Amble, Bergur Jónsson
- Dökkvi frá Bakkakoti 8,24 Róbert Bergmann
- Kriki frá Krika 8,24 Hjörtur Bergstað
- Kaldalón frá Kollaleiru 8,23 Heimahagi Hrossarækt ehf / Kristófer Darri Sigurðsson
- Sproti frá Vesturkoti 8,21 HJH Eignarhaldsfélag
- Skjóni frá Skálakoti 8,19 Kristján Einir Traustason
- Stormur frá Dýrfinnustöðum 8,18 Björg Ingólfsdóttir
- Fær frá Prestsbæ 8,17 Prestsbær ehf. og Hestklettur ehf.
- Auður frá Geitaskarði 8,16 Sigurður Örn Ágústsson
- Púls frá Lækjamóti 8,16 Arnarholt Tungusveit ehf
- Amadeus frá Þjóðólfshaga 8,15 Sigurður Sigurðarson
- Hraunar frá Litla-Garði 8,13 Georg Kristjánsson / Hestvit ehf.
- Hvirfill frá Mánaskál 8,12 Atli Þór Gunnarsson / Kolbrún Ágúst Guðnadóttir
- Skálkur frá Koltursey 8,09 Sara Sigurbjörnsdóttir
- Röðull frá Haukagili Hvítársíðu 8,08 Ágúst Þór Jónsson
- Friðmar frá Ísalæk 8,07 Silke Veith
- Ljúfur frá Miklaholti 8,03 Þór Kristjánsson
- Draumur frá Ísalæk 8,01 Silke Veith
Fréttasafn

11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð.

11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið. Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
















