Um innkomu og upphaf keppni á hringvelli

13. maí 2024

Um innkomu og upphaf keppni á hringvelli.

Vallaraðstæður eru mismunandi hjá hinum ýmsu félögum sem halda mót, og innkoma inn á keppnisvöll er eitthvað sem hefur á undanförnum misserum verið rædd töluvert og var meðal annars hluti þeirra breytinga sem urðu á FEIF þingi fyrr í vetur og tóku gildi 1. apríl.

Misjafnt er hvort innkoma að velli sé um skammhlið eða á langhlið vallarins, og innkoma á skammhlið getur ýmist verið í horni (í beygjunni eða á miðri skammhlið).

Fróðleiksmoli vikunnar er um innkomu á hringvöll og upphaf keppni.

Í reglu Í17.5 í reglum um íþróttakeppni er því lýst hvernig innkomu og upphafi sýningar skal háttað þegar hlið er staðsett á skammhlið annarsvegar og langhlið hinsvegar.

Þar segir um innkomu á skammhlið (þar með talið ef hlið er staðsett í horni vallarins og er þar með ekki á miðri skammhlið) - knapar sem óska eftir því að hefja keppni á skammhlið FJÆRST frá innkomu, skulu koma sér að þeim stað sem þeir ætla að hefja keppni (miðju skammhliðar) á annari hvorri langhliðinni og hefja þegar keppni (án þess að snúa við).

Sem þýðir að knapinn skal ríða inn í braut á þá höndina sem hann ætlar að sýna verkefnið sitt (ekki er leyfilegt að snúa við í hinum enda hringvallar til þess að hefja sýningu).

Um innkomu á skammhlið (þar með talið ef hlið er staðsett í horni vallarins og er þar með ekki á miðri skammhlið)- knapar sem óska eftir því að hefja keppni á skammhlið NÆST innkomu skulu koma sér að þeim stað þar sem þeir ætla að hefja keppni (miðju skammhliðar) án þess að fara yfir merki sem gefa til kynna upphaf langhliðar.

Sé innkoma á langhlið skal knapi fara stystu leið að þeirri skammhlið sem hefja skal keppni og hneigja sig greinilega og gefa til kynna að keppni sé hafin.

Ef innkoma er á langhlið má snúa við á þeirri skammhlið sem hefja á leik ef við á en skýringarmyndir fréttarinnar gefa skýra mynd af því hvernig því skal háttað hvort sem innkoma sé á skammhlið eða langhlið.

Landssamband hestamannafélaga hvetur mótshaldara til þess að kynna innkomu vallarins á knapafundi eða á viðburði mótsins til þess að fyrirbyggja allan misskilning varðandi þetta og séu knapar óvissir að leita sér upplýsinga hjá mótshaldara, mótsstjóra eða yfirdómara móts.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira