Umsögn um frumvarp um sameiningu Hólaskóla og Háskóla Íslands

18. febrúar 2026

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um háskólasamtæður sem felur í sér áform um sameiningu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum.

LH sendi umsögn til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis þar sem tekið er undir umsögn Bændasamtaka Íslands og lýsir LH yfir áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðrar sameiningar á nám í hestafræðum á háskólastigi. 


Háskólinn á Hólum gegnir lykilhlutverki í þróun íslenskrar hestamennsku og íslenskrar reiðmennsku á heimsvísu og er ómetanleg stoð fyrir atvinnugreinina um íslenska hestinn. Tryggja þarf að fagþekking Háskólans á Hólum í hestafræði varðveitist og að sjálfstæði og frekari uppbygging hestafræðideildarinnar sé tryggð.


Fagleg kennsla og rannsóknir í hestafræðum eru forsenda þess að íslenski hesturinn haldi stöðu sinni sem einn mikilvægasti sendiherra okkar Íslendinga og sem mikilvægur þáttur íslenskrar menningar, atvinnulífs og ímyndar.


Hægt er að nálgast innsendar umsagnir á vef Alþingis.


Fréttasafn

17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
Lesa meira