Breytingar á reglum um leyfðan búnað
12. febrúar 2026
Breytingar á reglum um leyfðan búnað

Á ársþingi FEIF sem fram fór í Búdapest í voru kynntar breytingar í regluverkinu um leyfðan búnað í keppni. Frá og með 1. apríl taka þessar breytingar gildi og hægt verður að nálgast þær inni á heimsíðu FEIF þegar þar að kemur.
Breytingar eru:
- Pelham mél eru frá og með 1. apríl ekki leyfð til notkunar í keppni
- Gúmmíhringir á mélum mega ekki vera vera stærri að þvermáli en beislishringirnir sjálfir og má aðeins hafa einn hvoru megin
- Hálshringur/hálsband er ekki leyft til notkunar á upphitunarsvæði eða í keppni
- Stilling reiðmúla – allar tegundir reiðmúla lúta sömu reglu og mega ekki vera þrengri en 1,5 cm
- Til áréttingar tekur búnaðarnefnd FEIF fram að ef stangakeðja losnar eða dettur af á meðan á sýningu stendur hefur það engar afleiðingar gagnvart reglum
FEIF uppfærir listann yfir leyfðan búnað á komandi vikum og líkt og áður segir taka þessar reglur gildi þann 1. apríl næstkomandi og það er um að gera fyrir alla knapa og aðstandendur þeirra að kynna sér reglur um leyfðan búnað sérstaklega fyrir keppnistímabilið.
Fréttasafn

23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.


















