Þátttaka í mótum og félagsaðild

11. febrúar 2026


Keppnistímabilið er í þann mund að hefjast af fullum krafti á Landsmótsári og því er ekki úr vegi að hnykkja á þeim reglum sem gilda um félagsaðild keppenda á mótum á vegum LH.


Reglugerð um mótahald á Íslandi nær yfir þátttöku- og keppendareglur, en aðeins félagsmönnum hestamannafélaga er heimil þátttaka í opinberum mótum innan vébanda LH.


Keppnisrétt öðlast knapar er þeir hafa verið skráðir á félagaskrá hlutaðeigandi hestamannafélags. Keppandi getur aðeins tekið þátt í löglegum mótum í nafni eins hestamannafélags yfir keppnisárið. Það þýðir að skrái knapi sig til leiks og taki þátt í löglegu móti í nafni félags má hann ekki keppa fyrir annað félag á keppnisárinu (miðast við almanaksár).

Knapi sem er félagi í fleiri en einu félagi getur vissulega tekið þátt í óopinberum viðburðum á vegum hins félags síns, t.d. vetraruppákomum sem ekki eru skráð sem lögleg mót án þess að það hafi áhrif, en reglurnar um þátttöku gilda yfir lögleg opinber mót.


Í gæðingakeppni (fullorðinsflokkum) er það félagsaðild hesteiganda sem gildir, þ.e. eigandi hestsins þarf að vera skráður í viðkomandi félag þar sem hesturinn tekur þátt, í síðasta lagi þann dag sem skráningu lýkur á mótið.

Í yngri flokkum í gæðingakeppni (barna- unglinga- og ungmennaflokki) skal knapinn vera skráður í félagið sem keppt er hjá óháð félagsaðild hesteiganda.


Landssamband Hestamannafélaga hvetur alla keppendur til þess að hafa þessi atriði í huga strax í upphafi keppnistímabilsins og passa upp á að skrá sig sem þátttakanda fyrir það félag sem keppa á fyrir því við fyrstu skráningu ársins á löglegt mót hefur knapi bundið sig við það félag sem keppt er fyrir út keppnisárið.


Nánari upplýsingar og keppnisreglur má finna á heimasíðu LH.


 

 

 

Fréttasafn

4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
Lesa meira