Fréttir af FEIF þingi

5. febrúar 2026



Helgina 30 janúar til 1. febrúar fór fram ársráðstefna FEIF, alþjóðasamtaka um íslenska hestinn, í Búdapest í Ungverjalandi.

Í aðdraganda þingsins var haldinn aðalfundur þar sem aðildarþjóðirnar kusu rafrænni kosningu um þær tillögur sem lágu fyrir þetta árið og taka gildi 1. apríl nk.


Þingið var gott og gestrisnir Ungverjar tóku virkilega vel á móti fulltrúum þjóðanna með góðu skipulagi á ráðstefnunni. Buðu þeir upp á kynningu á menningu sinni og þjóð í hestaleikhúsi með íburðarmiklum sýningaratriðum og svo kvöldverð í siglingu á Dóná sem skilur borgarhluta Búdapest að. Ungverska sambandið á heiður skilinn fyrir móttökurnar.


Á þinginu fóru fram nefndarstörf og haldnir voru fræðsluerindi, m.a. um tæknifrjóvganir, Olil Amble og Dr. Susanne Braun fluttu erindi um mikilvægi gangskiptinga og Þorvaldur Kristjánsson fór yfir sögu WorldFengs í tilefni 25 ára afmælis gagnagrunnsins, sem á sér ekki hliðstæðu í hestaheiminum og er ótrúlega verðmætt gagn í allri starfssemi Íslandshestamennskunnar í heiminum.


Þær tillögur sem lágu fyrir aðalfundinum að þessu sinni snúa að mörgu leyti að kjarna íþróttarinnar með velferð hestsins, gagnsæi og skýrleika í huga og taka þær breytingar sem samþykktar voru gildi þann 1. apríl næstkomandi.


Ein viðamesta breytingin á regluverkinu að þessu sinni er nýr kafli um agareglur og viðurlög. FEIF tekur nú til notkunar nýtt spjaldakerfi sem er umfangsmeira og skýrara en það sem áður var, með lituðum spjöldum þar sem afleiðingar brota koma inn á einstakar sýningar og fylgja einnig knapanum yfir almanaksárið. Spjöldin verða eftir sem áður gul, rauð, blá og hvít en að auki hefur bæst við grátt spjald sem þýðir ógild sýning. Mistök í sýningu, skeifa fer undan, röng innkoma á völl og fleira varðar grátt spjald í stað þess rauða sem áður hefur verið. Gul og rauð spjöld eru agaspjöld sem notuð verða eftir atvikum. Nýtt er að öll gul eða rauð spjöld verða lesin upp og tilkynnt í hátalarakerfi móts, svo fer fram skráning spjalda og munu þau fylgja knapa út almanaksárið. Fái knapi opinbera viðvörun (gul spjöld frá 2 dómurum eða fleiri) þrisvar sinnum á keppnistímabilinu varðar það sjálfkrafa keppnisbann. Sama gildir um ef knapi fær rauð spjöld frá tveimur dómurum eða fleiri tvisvar sinnum yfir tímabilið. Gult spjald hefur einnig þær afleiðingar að hafa áhrif á einkunn í hringvallargreinum og gæðingaskeiði ásamt því að bæta við refsitíma í skeiðgreinum. Nánar verður skrifað og farið yfir þá reglugerð í sérstakri grein hér á síðunni á næstunni.


Breyting var gerð á reglum um afskráningu fyrir úrslit, þar sem tímamörkin við slíka afskráningu voru lengd úr 1 klst. í 2 klst. til þess að liðka fyrir því að þeir sem koma inn í úrslit geti undirbúið það betur en ella.

Nú er það skjalfest að skylda er að hafa hesta örmerkta sem taka þátt í keppni.

Staðsetning hnakksins hefur verið skýrð betur og röng staðsetning hnakks, hvort sem er að hann sé staðsettur of aftarlega eða of framarlega getur leitt af sér spjald og þar með viðurlög.

Skeifur úr öðru efni en hefðbundnar járnskeifur skulu vera áfastar (negldar eða límdar), allar fjórar úr sama efni og mega ekki vega meira en járnskeifur. Hófklossar (hoof boots) sem reimdir eru á hófinn eru ekki leyfðir.

Tímamörk til þess að fara inn í rásbása í skeiði hafa einnig verið lækkuð niður í eina mínútu frá því að þulur kallar hest í rásbás.

Í kappreiðaskeiði (150 og 250 m skeiði) hefur hlutverk og fjöldi hlaupagæslumanna verið skilgreint á skýrari hátt en áður og landssambandi hvers aðildarlands gert að tryggja nauðsynlega þjálfun þeirra sem sinna því hlutverki.

Í gæðingaskeiði hefur verið hnykkt á orðalagi og útfærslu í takt við lýsingu í leiðara um að til þess að komast í hæstu einkunnir fyrir niðurhægingu skal hestur vera kominn á fet við enda niðurhægingarkaflans.

Þar að auki mun útfærsla á dómum skeiðsýninga í fimmgangi taka nokkrum breytingum þar sem hægt verður að fá einkunn fyrir skeið þó svo að niðurtaka/gangskipting sé ögn sein, þó með frádrætti og aldrei hærri einkunn en 6,0 fyrir atriðið.



Góðar og ganglegar umræður voru í öllum nefndum og eins og áður segir mun frekari kynning á reglubreytingum og þýðingu þeirra fara fram sérstaklega hér á síðunni og á fundum með dómurum í aðdraganda komandi keppnistímabils. 

Fréttasafn

3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
Lesa meira