4 gullverðlaun á Norðurlandamóti

17. ágúst 2026

Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti

Norðurlandamót íslenska hestsins fór fram dagana 4. – 9. ágúst. Mótið gekk vel og stóðu íslensku keppendurnir sig vel. Alls var 21 knapi í liðinu með 23 hesta, 7 knapar í fullorðinsflokki og 14 knapar í ungmenna- og unglingaflokki. 8 knapar fóru með hesta sína frá Íslandi en að auki voru knapar búsettir erlendis á sínum hestum og knapar frá Íslandi á lánshestum. Góð stemning var í liðinu og voru knapar duglegir að styðja hvert annað.


Fimmgangur

Snorri Dal var eini keppandi Íslands í fimmgangi fullorðinna. Snorri var með hest sinn Gimmstein frá Víðinesi og enduðu þeir í 3. sæti með 7,17 í einkunn.

Í ungmennaflokki voru 2 íslenskir keppendur, þær Þórgunnur Þórarinsdóttir og Kristín Eir Hauksdóttir Holaker. Þórgunnur var á Tófu Þorvardóttur från Stall Vitavillan og enduðu þær í 3. sæti með 6,69 í einkunn. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker var á Engli frá Ytri-Bægisá 1 og enduðu þau í 5. sæti með 6,33 í einkunn.

Í unglingaflokki var einn íslenskur keppandi, Viktor Arnbro Þórhallsson. Viktor var á hryssunni Ársól från Stensäter og enduðu þau í 5. sæti.


Fjórgangur

Ísland átti engann keppanda í fjórgangi í fullorðins- og unglingaflokki.

Í ungmennaflokki voru 4 íslenskir knapar sem tóku þátt. Eva Kærnested keppti á hesti sínum Loga frá Lerkiholti en þau tryggðu sér sæti í A-úrslitum og enduðu í 5. sæti með 6,77 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir á Kvasir frá Steinnesi tryggðu sér sæti í B-úrslitum en þau enduðu í 9. sæti með 6,60 í einkunn. Guðný Dís Jónsdóttir á Laka från Adalgården komust ekki í úrslit og Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal urðu fyrir því óhappi að missa skeifu og náðu því ekki að ljúka sinni sýningu.


Tölt T1

Þórarinn Eymundsson var eini keppandi Íslands í tölti T1. Þórarinn var á Náttfara frá Varmalæk en þeir tryggðu sér sæti í B-úrslitum og enduðu í 7. sæti með 7,33 í einkunn.

Í tölti T1 ungmennaflokki röðuðu íslenskir knapar sér í fjögur efstu sætin. Jón Ársæll Bergmann tryggði sér Norðurlandameistara titil með sigri í tölti T1. Jón Ársæll var á Viskusteini frá Íbishóli og einkunn þeirra í A úrslitum var 8,06. Í öðru sæti var Hekla Rán Hannesdóttir á Tindi frá Árdal og hlutu þau 7,50 í einkunn. Í þriðja sæti var Eva Kærnested og Logi frá Lerkiholti með 7,39 í einkunn.  Elva Rún Jónsdóttir vann sig upp úr B úrslitum og endaði í 4. sæti með Kvasir frá Steinnesi. Einkunn þeirra í A úrslitum var 7,17. Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Fanndís Helgadóttir tryggðu sér jafnframt sæti í B úrslitum. Elísabet og Dyggur från Stummelbo enduðu í 7. sæti með 6,89 í einkunn og Fanndís og Ötull frá Narfastöðum enduðu í 9. sæti með 6,44 í einkunn. Sara Dís Snorradóttir og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Arthúr frá Baldurshaga, Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan og Guðný Dís Jónsdóttir og Laki från Adalgården komust ekki í úrslit.

Ísland átti einn fulltrúa í tölti T1 unglingaflokki en það var Viktor Arnbro Þórhallsson. Viktor var á Ársól från Stensäter en þau tryggðu sér sæti í A úrslitum og enduðu í 5. sæti.


Slaktaumatölt T2

Ísland átti engann fulltrúa í slaktaumatölti fullorðinsflokki.

Í ungmennaflokki tryggði Fanndís Helgadóttir á Ötul frá Narfastöðum sér sæti í A úrslitum. Fanndís og Ötull enduðu í 3. sæti með einkunnina 7,21. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Engli frá Ytri-Bægisá komust ekki í úrslit. 

Elísabet Benediktsdóttir á Míó från Änghaga voru fulltrúar Íslands í slaktaumatölti unglinga. Þau enduðu í 2. sæti með 6,50 í einkunn.


Gæðingaskeið

Í gæðingaskeiði átti Ísland einn fulltrúa í hverjum flokki. Bergþór Eggertsson á Fjalladísi frá Fornusöndum voru fulltrúar Íslands í fullorðinsflokki. Þau enduðu í 3. sæti með 7,50 í einkunn. Þórgunnur Þórarinsdóttir á Tófu Þorvardóttir från Stall Vitavillan tóku þátt í ungmennaflokki en þær enduðu í 5. sæti. Viktor Arnbro Þórhallsson á Ársól från Stensäter voru fulltrúar Íslands í unglingaflokki en þau enduðu í 4. sæti.


Skeið 250 m

Í 250 m skeiði átti Ísland 3 keppendur í fullorðinsflokki og 2 keppendur í ungmennaflokki.

Í fullorðinsflokki tryggði Kristján Árni Birgisson sér silfur á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk en besti tími þeirra var 22,94 sek. Í 5. sæti var Bergþór Eggertsson á Fjalladísi frá Fornusöndum á tímanum 23,48 sek. og Sigurður Narfi Birgisson á Randveri frá Þóroddsstöðum endaði í 7. sæti á tímanum 23,74 sek.

Í ungmennaflokki tryggði Dagur Sigurðarson sér Norðurlandameistara titil þegar hann sigraði 250 m skeið á Galbjarti frá Hóli. Besti tími þeirra var 23,93 sek. Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan tryggðu sér brons en besti tími þeirra var 24,80 sek.


100m skeið

Sigurður Narfi og Kristján Árni voru fulltrúar Íslands í fullorðinsflokki í 100m skeiði. Sigurður Narfi og Randver frá Þóroddsstöðum enduðu í 5. sæti en þeir fóru á tímanum 7,80 sek. Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk enduðu í 6. sæti en þau fóru á tímanum 7,96 sek.

Ísland átti einn fulltrúa í 100m skeið ungmenna og unglinga. Dagur Sigurðarson keppti í ungmennaflokki á Galbjarti frá Hóli en þeir enduðu í 4. sæti og fóru á tímanum 8,12 sek. Viktor Arnbro Þórhallsson og Ársól från Stensäter kepptu í unglingaflokki en þau enduðu í 3. sæti og fóru á tímanum 9,70 sek.


Gæðingakeppni


A flokkur

Fulltrúi Íslands í A flokki var Gormur fra Villanora en knapi hans var Þórður Þorgeirsson. Þeir leiddu að forkeppni lokinni en enduðu að lokum í 2. sæti en einkunn þeirra í A úrslitum var 8,66.


B flokkur

Í B flokki átti Ísland tvo fulltrúa, þá Náttfara frá Varmalæk og Þórarinn Eymundsson og Agnar frá Margrétarhofi og Reynir Örn Pálmason. Þeir tryggðu sér báðir sæti í A úrslitum. Eftir harða baráttu í úrslitum fór það svo að Náttfari og Þórarinn enduðu í 2. sæti, með 8,83 í einkunn, 0,02 frá sigri. Agnar og Reynir tryggðu sér brons með 8,72 í einkunn.


B flokkur ungmenna

Ísland átti 4 fulltrúa í B flokki ungmenna, þau Jón Ársæl Bergmann, Heklu Rán Hannesdóttur, Söru Dís Snorradóttur og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal. Að lokinn forkeppni tryggðu Jón Ársæll og Hekla Rán sér sæti í A úrslitum og Sara Dís og Guðmar tryggðu sér sæti í B úrslitum. Sara Dís gerði sér lítið fyrir og sigraði B úrslitin og þar með átti Ísland þrjá fulltrúa í A úrslitum. Guðmar og Arthúr frá Baldurshaga enduðu í 11.sæti með 8,41 í einkunn. Í A úrslitunum sýndu íslensku knaparnir mikla yfirburði og að lokum fór það svo að íslensku knaparnir röðuðu sér í efstu sætin. Norðurlandameistari í B flokki ungmenna er Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli en þeir tryggðu sér þar með sinn annan titil. Einkunn þeirra í A úrslitum var 8,88. Í öðru sæti var Hekla Rán á Tindi frá Árdal með einkunina 8,79 og upp úr B úrslitum og í 3. sæti var Sara Dís og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili með 8,71 í einkunn.


A flokkur ungmenna

Fulltrúar Íslands í A flokki ungmenna voru Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Engill frá Ytri-Bægisá 1 og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Leikur frá Lækjamóti 2. Guðmar og Leikur enduðu í 14. sæti að lokinni keppni í B úrslitum. Kristín Eir og Engill tryggðu sér sæti í A úrslitum og enduðu að þeim loknum í 7. sæti.


Unglingaflokkur

Elísabet Líf Sigvaldadóttir tryggði sér Norðurlandameistaratitil í unglingaflokki á Dygg från Stummelbo. Eftir að standa jöfn í 1. – 2. sæti eftir forkeppni mætti Elísabet ákveðin til leiks í A úrslit sem skilaði henni nokkuð öruggum sigri. Einkunn þeirra í A úrslitum var 8,50.


Samanlagðir sigurvegarar

Ísland átti þrjá knapa í verðlauna sætum í samanlögðum greinum. Þórgunnur Þórarinsdóttir og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan voru í 4. sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum ungmenna. Eva Kærnested og Logi frá Lerkiholti voru í 2. sæti í samanlögðum fjórgangsgreinum ungmenna og Viktor Arnbro Þórhallsson og Ársól från Stensäter voru í 2. sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum unglinga.


Á lokadegi mótsins kom upp hestaveiki á mótsstað en nokkrir hestar úr einu liðinu veiktust og fengu hita. Vel var búið að fylgjast með öllum hestum í aðdraganda og eftir að á mótsstað var komið en allir hestar voru hitamældir í nokkra daga fyrir mót og alla daga meðan á mótinu stóð. Hestar íslenska liðsins sluppu við veikindi á meðan mótinu stóð. Allur fatnaður landsliðsknapa og starfsfólks var skilinn eftir á Keflavíkurflugvelli þar sem hann fer beint í sótthreinsun hjá Fönn. Fönn styrkir landsliðið eins og áður með hreinsun á öllum fatnaði. Eru þeim færðar kærar þakkir. 

 

Flottur árangur hjá íslenska landsliðinu á Norðurlandamóti 2026 en liðið fékk fjögur gull, átta silfur og níu brons. Þátttaka á mótinu skilaði dýrmætri reynslu og lærdómi fyrir landsliðsknapa og þjálfarateymi.







Fréttasafn

17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
Lesa meira