Íslandsmóti barna og unglinga lokið

4. ágúst 2026

Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni

Íslandsmót barna og unglinga var haldið 22. – 26. Júlí á Brávöllum á Selfossi af hestamannafélaginu Sleipni. Frábærlega vel var staðið að mótinu, aðstaðan og umgjörðin til fyrirmyndar hjá fulltrúum Sleipnis. Mótið heppnaðist mjög vel og öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd mótsins eru færðar kærar þakkir.


Gæðingaskeið

Fyrstu Íslandsmeistararnir voru krýndir á föstudagsmorgun þegar keppt var í gæðingaskeiði unglinga. Íslandsmeistari í gæðingaskeiði unglinga er Viktor Arnbro Þórhallsson á Drottingu frá Ysta-Gerði með einkunina 7,04. Þau skiluðu tveim mjög jöfnum sprettum, einkunn í þeim fyrri var 7,08 og seinni 7,0. Flottur árangur hjá Viktori.  Önnur var Bryndís Anna Gunnarsdóttir á Von frá Ási 1 með einkunina 6,50 og í þriðja sæti var Loftur Breki Hauksson á Sölva frá Stuðlum með einkunina 6,21.

 

100 m skeið

Seinni part laugardags fór fram keppni í 100 m skeiði. Mjög góðir tímar náðust í 100 m skeiði og örfá sekúndubrot skildu að fljótustu hesta. Íslandsmeistari í 100 m skeiði unglinga er Aron Dyröy Guðmundsson á margföldum skeiðmeistara Kjarki frá Árbæjarhjáleigu 2. Tími þeirra var 7,50 sek. Annan besta tímann áttu Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þórfinni frá Skáney, 7,53 sek. Í þriðja sæti var Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir á Tvist frá Garðshorni en tími þeirra var 7,57 sek.

 

Gæðingakeppni

Úrslitadagurinn hófst á A úrslitum í barnaflokki gæðingakeppni. Úrslitin voru mjög jöfn og spennandi fram á síðastu einkunn. Að lokum fór það svo að íslandsmeistari í barnaflokki er Valdís Mist Eyjólfsdóttir á Hnotu frá Þingnesi. Þær hlutu í einkunn 8,88. Önnur var Katla Dís Hannesdóttir á Sigurpáli frá Varmalandi með einkunina 8,87. Í þriðja sæti var Aron Einar Ólafsson á Skandal frá Varmalæk 1 með einkunina 8,77.

Næst var komið að A úrslitum í unglingaflokki gæðingakeppni. Íslandsmeistari er Elísabet Benediktsdóttir á Úlfi frá Kirkjubæ en þau hlutu í einkunn 8,88. Í öðru sæti var Sigurður Ingvarsson á Liljari frá Varmalandi með einkunina 8,80. Jafnir í 3 – 4 sæti voru þeir Hilmir Páll Hannesson á Grím frá Skógarási og Róbert Darri Edwardsson á Sambó frá Kanastöðum. Einkunn þeirra var 8,70.


Fjórgangur

A úrslit í fjórgangi barna voru jöfn og spennandi og réðust ekki fyrr en á síðasta atriði, greiðu tölti. Íslandsmeistari í fjórgangi barna er Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga. Einkunn þeirra var 6,83. Önnur var Viktoría Huld Hannesdóttir á Suðra frá Varmalandi með 6,77 í einkunn og í þriðja sæti var Eva Hrönn Ásmundsdóttir á Sölku frá Hólsbakka með 6,73 í einkunn.

Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyt frá Skáney. Sýning þeirra var gríðarlega jöfn og góð sem skilaði þeim efsta sæti. Jafnar í öðru til þriðja sæti voru Kristín Rut Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ og Linda Guðbjörg Friðriksdóttir á Áhuga frá Ytra-Dalsgerði með einkunina 6,90.


Gæðingatölt

Næst var komið að A úrslitum í gæðingatölti og byrjað var á úrslitum í barnaflokki. Þegar búið var að gefa allar tölur stóðu tveir knapar jafnir í fyrsta og öðru sæti með 8,69 í einkunn. Eftir sætaröðun dómara var ljóst að íslandsmeistari í gæðingatölti barnaflokki er Sigurey María Eyjalínardóttir á Jörp frá Kjarri. Jöfn henni en sæti neðar var Guðrún Lára Davíðsdóttir á List frá Sauðárkróki. Í þriðja sæti var Oliver Sirén Matthíasson á Gróu frá Þjóðólfshaga 1 með 8,66 í einkunn.

Íslandsmeistari í gæðingatölti unglinga er Elísabet Benediktsdóttir á Þór frá Hekluflötum. Sýning þeirra var kraftmikil og þau áttu frábært tilþrif á frjálsum hraða á tölti. Lokaeinkunn þeirra var 8,91. Annar var Hilmir Páll Hannesson á Heiðri frá Eystra-Fróðholti með 8,88 í einkunn og í þriðja sæti var Kristín Rut Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ með 8,85 í einkunn.


Slaktaumatölt

Í slaktaumatölti barna endurtók Valdís Mist leikinn frá því um morguninn og tryggði sér sinn annan Íslandsmeistaratitil. Í slaktaumatölti sat Valdís Ófeig frá Þingnesi. Einkunn þeirra var 7,38. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Valdísi. Í öðru sæti var Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga með 7,00 í einkunn. Þriðja var Eyvör Sveinbjörnsdóttir á Hag frá Hofi á Höfðaströnd með 6,83 í einkunn.

Íslandsmeistari í slaktaumatölti unglinga er Kári Sveinbjörnsson á Gígjari frá Bakkakoti. Þeir tryggðu sér sigurinn á góðri sýningu á tölti við slakan taum. Einkunn þeirra var 7,04. Annar var Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Erró frá Höfðaborg með einkunina 6,96 og í þriðja sæti var Hilmir Páll Hannesson á Goða frá Oddgeirshólum 4 með einkunina 6,71.


Fimmgangur

Á íslandsmóti barna og unglinga er keppt í fimmgangi F2 í unglingaflokki. Íslandsmeistari í þeirri grein er Hjördís Halla Þórarinsdóttir. Hún sat Fák frá Oddhóli og þau hlutu 6,79 í einkunn. Sýning Hjördísar og Fáks var mjög jöfn sem skilaði þeim íslandsmeistartitli. Annar var Loftur Breki Hauksson á Mánadís frá Litla-Dal með 6,74 í einkunn og í þriðja sæti var Apríl Björk Þórisdóttir á Esju frá Miðsitju með 6,64 í einkunn.


Tölt

Síðustu úrslit íslandsmóts barna og unglinga var keppni í tölti. Keppt var í T3 í barnaflokki og T1 í unglingaflokki. Valdís Mist Eyjólfsdóttir kórónaði glæsilegan árangur sinn á mótinu þegar hún sigraði A úrlit í tölti barna. Þar sat hún Hnotu frá Þingnesi en þar endurtóku þær leikinn frá því í A úrslitum í gæðingakeppni sem fram fóru fyrr um daginn. Þriðji íslandsmeistaratitill Valdísar í höfn, sannarlega glæsilegur árangur. Einkunn Valdísar og Hnotu í úrslitum í tölti var 7,00. Jafnir í öðru til þriðja sæti voru Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga og Aron Einar Ólafsson á Fengsæl frá Jórvík með einkunina 6,94.

Síðustu úrslit íslandsmóts barna og unglinga voru A úrslit í tölti T1 unglingaflokki. Frábær lokaúrslit en það er heimamaðurinn Loftur Breki Hauksson sem er íslandsmeistari í tölti unglinga. Hann sat Fylkingu frá Austurási, einkunn þeirra var 7,28. Önnur var Apríl Björk Þórisdóttir á Lilju frá Kvistum með 7,17 í einkunn og í þriðja sæti var Elsa Kristín Grétarsdóttir á Arnari frá Sólvangi með 7,11 í einkunn. 


Stigahæsti knapi

Á Íslandsmóti barna og unglinga eru veitt verðlaun fyrir stigahæsta knapa.

Stigahæsti knapi í barnaflokki var Helga Rún Sigurðardóttir.

Stigahæsti knapi í unglingaflokki var Elísabet Líf Sigvaldadóttir.  

 

Frábæru Íslandsmóti barna og unglinga 2026 er lokið og við óskum öllum ný krýndum Íslandsmeisturum innilega til hamingju og þökkum öllum keppendum, mótshöldurum og sjálfboðaliðum fyrir þeirra aðkomu að þessu glæsilega móti. 

Fréttasafn

2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
Lesa meira