FEIF Youth Cup 2026 fór fram 13.-19. Júlí

29. júlí 2026

Mótssvæði HM 2027 mátað

15. FEIF Youth Cup fór fram dagana 13.–19. júlí í Gut Matheshof í Rieden í Þýskalandi en þar mun Heimsmeistarmót Íslenska hestsins fara fram 2027. Viðburðurinn er haldinn annað hvert ár og samanstendur af stífri þjálfun, alþjóðlegri liðakeppni og menningarsamskiptum í kringum íslenska hestinn. Markmið vikunnar er að efla samvinnu, alþjóðlega vináttu og bæta reiðmennsku ungmenna. Alls tóku 69 þátttakendur frá 10 aðildarlöndum FEIF þátt, þar af sjö knapar frá Íslandi. Íslensku knaparnir sem tóku þátt eru Anita Liv Snævarsdóttir, Aníta Líf Magnúsdóttir, Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Rebecca Luise Lehmann, Sigríður Fjóla Aradóttir, Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir og Unnur Rós Ármannsdóttir. Með hópnum fór Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður æskulýðsnefndar LH. 

Ferðalagið og fyrstu skrefin

​Ferð íslenska hópsins hófst sunnudagskvöldið 12. júlí. Ferðalagið til Rieden gekk vel og á mánudeginum tók hópurinn á móti lánshestum sínum og fór með þá í dýralæknaskoðun. Þar sem ekki er gerlegt að ferðast með hesta frá Íslandi reiða íslensku þátttakendurnir sig á lánshesta á mótinu. 

​Seinni part dags var farið í reiðtíma hjá Chrissy Seipolt sem sá um að para saman knapa og lánshesta. Um kvöldið var öllum þátttakendum skipt í 11 alþjóðleg lið, sem hvert hafði sinn liðsstjóra (Team Leader). Fyrsta verkefnið var að velja liðsnafn út frá úthlutuðum bókstaf og velja einkennislag liðsins sem spilað var þegar liðsfélagar unnu sína grein.

Fjölbreyttar æfingar og skemmtileg dagskrá

​Á þriðjudegi og miðvikudegi mættu liðin á tvær æfingar á dag hjá sérgreinaþjálfurum:

  • Svenja Braun sá um trail-æfingar. 
  • ​Chrissy Seipolt sá um gangtegundaæfingar. 
  • Reinhard Loidl sá um töltæfingar. 
  • ​Bea Rusterholz sá um dressage æfingar. 
  • ​Lisa Schürger og Freija Thye sáu um skeið- og flag race-æfingar. 

​Á þriðjudagskvöldinu var haldið glæsilegt þjóðarkvöld þar sem hvert land kynnti sína menningu með skemmtiatriði og bauð upp á góðgæti að heiman. Miðvikudagskvöldið nýttu Dressage-knapar vel í aukalega æfingu til að festa prógrammið í minni.

Keppnin hefst og hátíðleg setningarathöfn

​Á fimmtudeginum var farið á síðustu æfinguna og dýralæknaskoðunin Fit to Compete fór fram þar sem allir hestar stóðust skoðun. Eftir myndatökur og afhendingu á svokölluðum „Lucky pots“ hófst keppni á trail og tölti T4. 

​Á föstudeginum hélt keppni áfram í F2, T7, T3 og Gæðingaskeiði PP2. Eftir hádegi fór fram táknræn setningarathöfn þar sem knapar gengu fyrst inn með löndum sínum með sínum fararstjóra og fánabera og á eftir komu liðstjórarnir með sína liðsfána. Á vellinum færðu þátttakendur sig yfir til sinna liðsstjóra og voru í liðabolum sínum, en hvert lið hefur sinn lit og fá þátttakendur boli í liðalit sínum. Eftir að veitt voru verðlaun fyrir trail og gæðingaskeið hélt keppnin áfram í V5, V2 og dressage, sem þurfti þó að stöðva vegna þrumuveðurs. Um kvöldið þreyttu liðin skriflegt fræðipróf (Theory test) um FEIF og íslenska hestinn.

Lokaúrslit og verðlaunahátíð

​Á laugardaginn var komið að lokadegi keppninnar. Dagurinn hófst á að klára dressage, auk þess sem keppt var í flag race og 100m flugskeiði. A-úrslit fóru fram í T7, T3 og T4 fyrir hádegi, og V5, V2 og F2 eftir hádegi. 

​Mótinu lauk með glæsilegri lokaathöfn. Veitt voru verðlaun fyrir einstakar greinar, stigahæstu liðin og stigahæsta knapa mótsins. Þá var FEIF fjöðrin veitt fyrir sérstaklega fagra, mjúka og næma reiðmennsku. Um kvöldið var haldið myndakvöld og kveðjupartý.

Lærdómsríkt ævintýri og varanleg vinátta

​Að keppa á lánshestum er ævinlega áskorun, sérstaklega þar sem lítill tími gafst til að prófa hestana fyrir mótið vegna Landsmóts heima á Íslandi. Þótt væntingar um hesta hafi ekki gengið eftir hjá öllum stóð íslenski hópurinn sig frábærlega í að stilla hugarfarið, gera sitt besta og taka virkan þátt. 

​Ferðin skilaði bæði persónulegum og keppnislegum sigrum, og mikilvægast af öllu: alþjóðlegri vináttu og góðum minningum. Strax er vitað til þess að nokkrir erlendir þátttakendur hafa nú þegar bókað eða skipulagt ferðir til Íslands til að heimsækja nýju vini sína og upplifa íslenska hestinn í sínu náttúrulega umhverfi. 

Fréttasafn

27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
26. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ólafur Gunnarsson – Hestamannafélagið Jökull
25. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028  Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur
22. október 2026
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Markmiðið er að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishald, útreiðar, menntun, útflutning og afleidda þjónustu. Gengið hefur verið til samninga við KPMG um að vinna skýrslu um hagspor greinarinnar með aðstoð starfsmanna LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í kjölfarið verði þróað stafrænt mælaborð með lykiltölum sem hagaðilar geta birt eða tengt við á sínum vefmiðlum. Samstarfið mun einnig ná til kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn, með hliðsjón af fyrirmyndum á borð við Horses of Iceland og verður unnið í samtali við stjórnvöld og yfirvöld. „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa. Aðilar samkomulagsins munu eiga virkt samtal við ráðherra, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir um aðkomu að verkefninu og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við stefnumótun, kynningu og verðmætasköpun tengda íslenska hestinum. Næstu skref eru að skilgreina umfang greiningarinnar, undirbúa mælaborð og móta sameiginlega áætlun um kynningarstarf íslenska hestsins í samstarfi við hagaðila og opinbera aðila. Greining á hagrænu umfangi hestamennskunnar og hestaiðnaðinum í heild sinni er mikið gæfuspor fyrir alla sem tengjast greininni og mun nýtast vel til að tryggja greininni þann sess sem hún á skilið, til framtíðar.
19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
Lesa meira