Landsþing LH 2026 verður haldið 30. – 31. október
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
Landsþing LH er haldið annað hvert ár og fer með æðsta vald í málefnum LH. Þingið sitja fulltrúar frá hestamannafélögum í landinu.
Þingið fer að þessu sinni fram á Hótel Örk í Hveragerði og er það Hestamannafélagið Ljúfur sem er gestgjafinn að þessu sinni og færum við Ljúfi bestu þakkir.
Allar breytingartillögur á keppnisreglum skulu berast keppnisnefnd LH og laganefnd LH eigi síðar en 1. september á landsþingsári. Tillögurnar skulu sendar skrifstofu LH á lh@lh.is. Keppnisnefnd og laganefnd fara yfir tillögurnar og veita umsögn sína um þær, séu þær þingtækar. Skal sú umsögn fylgja tillögunum inn á landsþing.
Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn LH minnst 4 vikum fyrir þingið eða fyrir miðnætti 2. október.
Innsendar tillögur skulu vera vel uppsettar, skýrar í framsetningu og með þeim skal fylgja greinargerð þar sem færð eru rök fyrir tillögunni og tilgangur hennar útskýrður.
Lög landsþings eru að finna hér.
Við hvetjum hestamannafélögin til að koma vel undirbúin til þings.
Fréttasafn



















