LH auglýsir starf yfirþjálfara Hæfileikamótunar LH laust til umsóknar

21. ágúst 2026

Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.

Hæfileikamótun LH er vettvangur fyrir knapa 14-17 ára (unglingaflokkur) þar sem áhersla er lögð á menntun og fræðslu fyrir knapa sem íþróttafólk. Markmið hæfileikamótunar LH er að byggja upp knapa til framtíðar, kynna þá fyrir afreksumhverfi íþróttarinnar, efla samskipti og félagsstarf á landsvísu og stuðla að uppbyggilegu afreksstarfi víðsvegar um landið.


Verkefnið samanstendur af tveimur vinnuhelgum þar sem þátttakendur mæta með sína hesta og einni ferð að Hólum þar sem nemendur fá að spreyta sig á skólahestum.


Hlutverk yfirþjálfara Hæfileikamótunar er að halda utan um verkefnið fyrir hönd LH og sjá um kennslu og skipulag hennar þegar Hæfileikamótun LH kemur saman ásamt aðstoðarþjálfara. Þar að auki sér yfirþjálfari um að velja knapa inn í Hæfileikamótun ásamt valteymi sem samanstendur af yfirþjálfa Hæfileikamótunar, afreksstjóra LH og formanni Landsliðs- og afreksnefndar. Áætlað er að hver hópur Hæfileikamótunar samanstandi af 20-24 nemendum. 


Helstu verkefni

  • Hefur yfirumsjón með Hæfileikamótun LH í hestaíþróttum.
  • Leggur fyrir landsliðsnefnd, ásamt valteymi, val á knöpum til að skipa Hæfileikamótun LH, skv. skilgreiningu landsliðsnefndar þar um, til staðfestingar
  • Skipuleggur dagskrá ársins fyrir Hæfileikamótun, í samráði við afreksstjóra og landsliðsnefnd
  • Skipuleggur vinnuhelgar Hæfileikamótunar
  • Sér um kennslu á vinnuhelgum, ásamt aðstoðarþjálfurum
  • Kemur að foreldrafundi og fræðsludögum Hæfileikamótunar
  • Fylgist með stærstu mótum og árangri í keppni í unglingaflokki
  • Hefur yfirsýn yfir fremstu knapa landsins hverju sinni í unglingaflokki
  • Skilar starfsskýrslu til landsliðsnefndar í september ár hvert

Reynsla

  • Reynsla af reiðkennslu á unglingastigi
  • Reynsla af þjálfun og undirbúningi keppnisknapa
  • Reynsla af skipulagningu og utanumhaldi æfinga- eða vinnuhelga
  • Reynsla af samskiptum við foreldra og forráðamenn ungra keppenda er kostur

Hæfniskröfur

  • Yfirþjálfari Hæfileikamótunar þarf að hafa meistarapróf FT, reiðkennarapróf frá Hólum eða þjálfaramenntun LH (1-3 stig)
  • Yfirþjálfari skal vera fyrirmynd hestaíþróttarinnar, innan greinarinnar og út á við, í framkomu við starfsfólk móta, dómara, keppendur og aðra þá sem tengjast íþróttinni
  • Yfirþjálfari skal stuðla að velferð hesta og vera fyrirmynd í allri umhirðu, tamningu, reiðmennsku og öðru er varðar velferð hestsins, sbr. lög um velferð dýra
  • Yfirþjálfari þarf að hafa framúrskarandi samskiptahæfni


Umsóknir skal senda á netfangið
lh@lhhestar.is

Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk.


Frekari upplýsingar veita Berglind Karlsdóttir framkvæmdastjóri LH, s. 514 4030 berglind@lhhestar.is og Sigurbjörn Eiríksson formaður landsliðs- og afreksnefndar landslidsnefnd@lhhestar.is


Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira