Nýdómara- og landsdómaranámskeið GDLH
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
Vilt þú dýpka þekkingu þína á gæðingakeppni, öðlast færni til að meta gæðinginn af öryggi, sanngrini og fagmennsku og verða hluti af öflugum hópi virkra gæðingadómara?
Þá er dómaranámskeið GDLH eitthvað fyrir þig!
Námskeiðið hefst í byrjun október og endar með lokaprófi dagana 16.-18. október.
Námskeiðið samanstendur af fjarfyrirlestrum, heimaverkefnum og staðbundnu námi og lokapróf fer fram í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal dagana 16-18. október.
Námskeiðsgjald sem greiðist fyrirfram er:
Nýdómaranámskeið: kr 90.000-
Landsdómaranámskeið: kr 70.000-
Fræðslunefnd GDLH veitir allar upplýsingar og tekur á móti skráningum í gegnum netfangið gdlhdomarar(hjá)gmail.com
Fréttasafn



















