A-Landsliðshópur í hestaíþróttum 2026

15. janúar 2026

Ísólfur Líndal A-landsliðsþjálfari Íslands í hestaíþróttum hefur nú tilkynnt A-landsliðshóp fyrir árið 2026.

Hópurinn er skipaður 24 úrvalsknöpum sem leggja upp í vegferð í átt að Norðurlandamóti í Svíþjóð á komandi sumri og svo HM í Rieden í Þýskalandi árið 2027.


Allar knapar í hópnum hafa náð framúrskarandi árangri í hinum ýmsu greinum, eru með spennandi og sterkan hestakost fyrir komandi tímabil og skýr markmið um árangur og þar með vakið athygli landsliðsþjálfara og fengið pláss í þessum A-landsliðshópi.


Í hópnum eru fjórir ríkjandi heimsmeistarar frá því á HM í Sviss síðastliðið sumar, þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem er heimsmeistari í slaktaumatölti, Árni Björn Pálsson heimsmeistari í tölti, Kristján Árni Birgisson heimsmeistari í 100m og 250m skeiði ungmenna og Védís Huld Sigurðardóttir heimsmeistari í tölti og fjórgangi ungmenna.


Aðrir knapar í landsliðshópi LH 2026 eru:

Arnhildur Helgadóttir, Geysi

Ásmundur Ernir Snorrason, Geysi

Benjamín Sandur Ingólfsson, Geysi

Brynja Kristinsdóttir, Sörla

Daníel Gunnarsson, Skagfirðingi

Eyrún Ýr Pálsdóttir, Fáki

Flosi Ólafsson, Borgfirðingi

Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Sleipni

Guðmundur Björgvinsson, Geysi

Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni

Gústaf Ásgeir Hinriksson, Geysi

Hanna Rún Ingibergsdóttir, Geysi

Hans Þór Hilmarsson, Geysi

Helga Una Björnsdóttir, Þyt

Jóhanna Margrét Snorradóttir, Mána

Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra

Sigurður Vignir Matthíasson, Fáki

Teitur Árnason, Fáki

Viðar Ingólfsson, Fáki

Þórarinn Eymundsson, Skagfirðingi

Titilverjendur:

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Herði

Árni Björn Pálsson, Fáki

Kristján Árni Birgisson, Geysi

Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni


Áhersla er lögð á að sterkustu knapar landsins á hverjum tíma séu hluti af landsliðshópnum sem kemur saman reglulega yfir árið, fær fræðslu og stuðning ásamt því að leggja heilmikið af mörkum við fjáröflun til þeirra stóru verkefna sem framundan eru hjá LH.


Til hamingju landsliðsknapar, þjálfari og hestafólk.

Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira