Agaviðurlög vegna spjalda

22. maí 2026

Eins og áður hefur verið kynnt á heimasíðu LH voru nokkrar breytingar gerðar á keppnisreglum LH sem tóku gildi 1. apríl sl, sjá nánar hér.


Stærsta breytingin var ný og endurskoðuð reglugerð um spjaldanotkun.


Vakin er athygli á því að samkvæmt reglugerðinni hlýtur knapi sem fær þrisvar sinnum tvö (eða fleiri) gul spjöld í sýningum þriggja vikna keppnisbann. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö gul spjöld (eða fleiri) í þriðja sinn á sama almanaksári. Jafnframt hlýtur knapi sem fær tvisvar sinnum tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu keppnisbann í 3 vikur. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö rauð spjöld (eða fleiri) í annað sinn á sama almanaksári og allur árangur knapans á því móti þurrkast út.


Að auki er heimilt að úrskurða keppnisbann hljóti knapi tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu en í þeim tilvikum er lengd keppnisbanns ákvörðuð af úrskurðar- og aganefnd LH.

Áminningar og keppnisbönn eru skráð og birt á heimasíðu LH og tilkynnt til FEIF innan tiltekins tíma. Gul og rauð spjöld sem gefin eru fylgja knapa yfir keppnistímabilið og leiða ítrekuð brot til keppnisbanns eins og farið er yfir er hér að ofan.  


Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira