Úrtökur fyrir Landsmót
Borið hefur á mistúlkun á reglum um val þátttakenda á Landsmót og fjórðungsmót, að allir sem skráðir séu í úrtöku eigi rétt á að vera fulltrúi síns félags á Landsmóti eða fjórðungsmóti, en reglan er þannig að ljúka þarf gildri sýningu í úrtöku síns félags til að eiga rétt á sæti.
Til að fyrirbyggja þennan misskiling lagði keppnisnefnd til við stjórn LH að gerð yrði breyting á orðalagi í gr. 5 um val keppenda á Landsmót í reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, breytingin á orðalagi er feitletruð:
5. Val hrossa og keppenda á Landsmót og fjórðungsmót
Þátttakendafjöldi á lands- og fjórðungsmóti miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga þann 15. apríl ár hvert.
Val hrossa í gæðingakeppni og keppenda í barna-, unglinga- og ungmennakeppni á lands- og fjórðungsmótum skal fara fram á úrtökumótum hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og barna- unglinga- og ungmennakeppni.
Til að eiga möguleika á að öðlast þátttökurétt á Landsmóti þarf að ljúka gildri sýningu í úrtöku hestamannafélags.
Stjórn samþykkti ofangreinda orðalagsbreytingu með vísan í gr. 10.4 í lögum LH um heimild stjórnar til að breyta reglugerðum milli landsþinga.
Fréttasafn


















