LH gerir samning við HorseDay um mótakerfi

29. maí 2026

LH gerir tímamótasamning við HorseDay!

LH og Horseday hafa gert með sér samning um að vinna saman að þróun á nýju og endurbættu mótakerfi fyrir mótahald í hestaíþróttum á Íslandi, HorseDay mót, sem koma skal í stað SportFengs með það fyrir augum að auka skilvirkni í mótahaldi og bæta þjónustu við notendur.

 

Sportfengur hefur reynst mótshöldurum vel en kominn er tími á mikla þróunarvinnu og uppfærslu á kerfinu sem hefði mikinn kostnað í för með sér.

 Ætlunin er að prufukeyra HorseDay Mót, samhliða SportFeng keppnistímabilið 2026, með það fyrir augum að HorseDay mót taki endanlega við af SportFeng frá og með janúar 2027.

 

HorseDay mun bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á þróun verkefnisins, jafnframt mun HorseDay sjá um að kosta rekstur og ábyrgjast góða virkni. LH mun leggja þróun kerfisins lið með því að taka þátt í hugmyndavinnu og ráðgjöf varðandi reglur og þarfir mótahaldsins og leggja til fulltrúa til að vinna með þróunarteymi HorseDay. LH hefur eignarrétt á öllum gögnum er varða mótahald á Íslandi.


Oddur Ólafsson framkvæmdastjóri HorseDay segir þetta ákaflega spennandi verkefni: „Frá upphafi hefur markmið okkar hjá HorseDay verið að byggja upp nútímalegar tæknilausnir sem styrkja íslenska hestamennsku og bæta upplifun hestafólks. Við höfum átt farsælt samstarf við LH undanfarin ár og erum þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt með þessu verkefni. Með þessu verkefni stíga LH og HorseDay næsta skref í stafrænni þróun íslenskrar hestamennsku, þar sem niðurstöðubirtingar, skráningar, mótastjórnun og samskipti innan móta verða sameinuð í öflugra og notendavænna umhverfi.

Markmið okkar er að þróa kerfi sem einfaldar umsýslu móta, eykur skilvirkni og bætir upplifun allra þeirra sem koma að mótahaldi. Við lítum á þetta sem langtímaverkefni og hlökkum til að vinna náið með LH, mótshöldurum, dómurum og hestafólki um allt land að lausn sem mun þjóna greininni um ókomin ár.“


LH og HorseDay hafa átt í farsælu samstarfi frá árinu 2023 um HorseDay appið sem leysti af hólmi LH Kappa við að birta niðurstöður móta, eins og þeir sem fylgjast með mótahaldi þekkja.


LH fagnar þessum tímamótum í mótahaldi á Íslandi og hlakkar til að eiga í áframhaldandi samstarfi við HorseDay um að þróa kerfi sem þjónustar mótahaldi LH, keppendum, mótshöldurum og áhugafólki um íslenska hestinn.

Fréttasafn

6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
Lesa meira