Stefnumótunarvinna LH fyrir árin 2026-2030

29. maí 2026

Stefna Landssambands hestamannafélaga 2026-2030

Á vormánuðum 2025 ákvað stjórn LH að hefja stefnumótunarvinnu. Boðað var til fundar 28. apríl 2025 og voru fulltrúar hestamannafélaga hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að skapa sameiginlega framtíðarsýn fyrir samband allra hestamanna. Var ákaflega gleðilegt að sjá hversu margir tóku frá tíma til að vera með okkur í þessari vinnu en um 80 manns tóku þátt í fundinum. Petra Björk Mogensen stýrði fundinum ásamt Lindu Björk Gunnlaugsdóttur og fengu þær dygga aðstoð frá þeim Jónínu Björk Vilhjálmsdóttur og Anna Kristín Kristinsdóttir sem tóku saman niðurstöður fundarins.


Á formannafundi LH var unnið áfram með samantekt fundarins frá í apríl undir stjórn Petru Mogensen. Þar urðu mjög líflegar umræður og margir snertifletir ræddir á hinum ýmsu málum og ljóst að það var heilmikið að vinna úr í framhaldinu. Fundinum var skipt upp í sex minni hópa sem fjölluðu hver um sig um ákveðna þætti í starfsemi LH, hvaða markmið skuli setja og hvernig skuli ná þeim.


Að loknum formannafundi tók stjórn LH við niðurstöðum úr hópavinnunni og lagði lokahönd á verkið.

Afraksturinn er stefna sem skilgreinir hlutverk LH, framtíðarsýn, stefnuáherslur og gildi, til næstu fimm ára ásamt aðgerðaráætlun.


Hlutverk LH er að skapa öflugan samstarfsvettvang hestamannafélaga, stuðla að miðlun þekkingar og menningar, veita þjónustu og ráðgjöf, efla íþrótta- og afreksstarf og standa vörð um sameiginlega hagsmuni í þágu hestamennskunnar.


Árið 2030  verður LH leiðandi afl í málefnum íslenska hestsins bæði á innlendum og erlendum vettvangi með velferð, öryggi og jöfn tækifæri fyrir alla í öndvegi. LH er í forystu innan ÍSÍ með eftirtektarvert afreksstarf og fær fjármagn í samræmi við umfang sitt.


Gildi LH eru: virðing, ábyrgð, metnaður og velferð

Einkunnarorð LH eru: íþrótt, menning, lífsstíll


Nú tekur við kynning, innleiðing og eftirfylgni stefnunnar, verkefnum LH verður forgangsraðað og gerðar aðgerðaráætlanir. Aðildarfélög, nefndir og félagsmenn verða kallaðir til þar sem við á. 

Við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Fréttasafn

6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
Lesa meira