Sumarið er komið á Skógarhólum

1. júní 2026

Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.

Skógarhólar eiga sérstakan stað í hjörtum margra hestamanna en þar voru lögð drögin að stofnun LH auk þess sem fyrsta Landsmótið var haldið þar. Staðurin er falin perla, umvafinn einstakri náttúru, sögu og skemmtilegum reiðleiðum.


Talsverðar umbætur hafa verið gerðar á húsinu undanfarin ár. Skipt var um norðurgaflinn á húsinu og einnig var nýtt þak var sett á húsið fyrir nokkrum árum
þannig að auðvelt er að halda hita á setustofunni. Í fyrra var tekin í gagnið sturtuaðstaða og klósettaðstaðan er orðin betri, gólfið í eldhúsinu var lakkað og öll herbergi eru nýmáluð. Þá eru einnig ný kolagrill á staðnum.


Hestamenn hafa verið duglegir að panta gistingu í vor en eitthvað er af lausum dögum í sumar. Húsið tekur 30 manns í gistingu og matsalur rúmar allt að 50 manns og fimm næturhólf eru fyrir hesta á Skógarhólum. Þá er einnig hægt að tjalda á staðnum.


Fyrir þá sem ekki þekkja til eru Skógarhólar í eigu Hestamannafélaganna í landinu þar býðst hestamönnum sem eru í hestamannafélögum gisting á sérstökum kjörum. Staðurinn er tilvalinn fyrir hópa og hverskonar hópefli, til dæmis æskulýðshópa hestamannafélaganna. Þá er einnig tilvalið fyrir hópa að koma með hross á kerru, gista eina nótt og ríða út í hinu ómótstæðilega umhverfi sem þjóðgarðurinn býður upp á.


Reiðleiðir í þjóðgarðinum eru fjölbreyttar og einstaklega skemmtilegar og hægt er að fara lengri og styttri hringi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


Tekið er við bókunum á netfangið skogarholar@lhhestar.is

Sjá nánar á vef LH.


Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira