Algengar spurningar um mótahald

21. maí 2026

Á vef LH er komin ný undirsíða sem heitir „Algengar spurningar um mótahald“.

Á vef LH er komin ný undirsíða sem heitir „Algengar spurningar um mótahald“.

Þar er að finna ýmsar upplýsingar um mótahaldið sem gagnast bæði mótshöldurum og keppendum.

Þetta er samantekt algengra spurninga sem upp koma í aðdraganda móta og svör við þeim.

Dæmi um spurningar eru:

Má keppandi í yngri flokkum keppa aldursflokki fyrir ofan sig ef ekki er boðið upp á grein í þeirra aldursflokki? Hvenær þarf keppandi að vera skráður í félag til að mega ríða úrtöku í félaginu? Hvenær þarf að tilkynna afskráningar td. í úrslit á mótum?

Vefsvæðið er lifandi og munu bætast við fleiri spurningar og svör með tíð og tíma.


Finna má síðuna undir flipanum „Keppnisíþróttin“ á forsíðu LH og þar er ýtt á flilpann „Algengar spurningar“.


Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira