8. maí 2026
LM2026 í Skagafirði hefur gefið út fyrirkomulag sýningargreina á Landsmóti. Boðið verður upp á B-flokk áhugamanna og A-flokk ungmenna sem sýningargreinar á LM. Hér getur að líta reglur um fyrirkomulag, framkvæmd og þátttökurétt knapa í þessum flokkum á LM2026. Hestamannafélögin þurfa að bjóða upp á þessa flokka í sínum úrtökum til þess að eiga rétt á að senda fulltrúa til keppni í þeim á komandi landsmóti. Að öðru leyti en fram kemur hér fyrir neðan fer val hrossa til þátttöku í þessum flokkum fram í gegnum úrtökur hestamannafélaganna samkvæmt lögum og reglum LH. B-flokkur áhugamanna • Knapar skulu vera í fullorðinsflokki, þ.e. 22 ára eða eldri. • Hestur getur aðeins keppt fyrir eitt félag hvert almanaksár og þarf að vera í eigu félagsmanns í því félagi (Reglur um gæðingakeppni, gr. 3.1.). • Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður. • Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki. • Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki. Sjá nánar í reglugerð um B-flokk áhugamanna . Athugið að úrtaka aðildarfélaga fyrir B-flokk áhugamanna skal fara fram með sérstakri forkeppni líkt og riðin er á Landsmóti. A-flokkur ungmenna • Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í A-flokki ungmenna eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum. • Sérstök forkeppni fer fram í A-flokki ungmenna og milliriðill. A-úrslit verða framkvæmd eins og úrslit í A-flokki. Fari þátttakendafjöldi yfir 50, verða að auki riðin B-úrslit. • Keppendum í barna- og unglingaflokki er heimil þátttaka í þessum flokki (Reglur um gæðingakepni, gr. 7.4.4.). • Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður. • Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki. • Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki. Þátttökuréttur í þessum flokkum miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga LH þann 15. apríl 2026. Aðildarfélög mega senda 1 keppanda fyrir hverja 250 félaga og svo framvegis.