Skýr frá Skálakoti er í Stóðhestaveltu landsliðsins

30. mars 2026

Tollur undir Skýr frá Skálakoti er í Stóðhestaveltunni


Allra sterkustu sem haldið verður á Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardagskvöldið 4. apríl nk.

Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og um 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu.


LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.


Miðsala í stóðhestaveltunni verður á ALLRA STERKUSTU og á vefsíðu LH, miðaverð er 70.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.


Við kynnum næstu 10 stóðhesta til leiks:

Skýr frá Skálakoti 8,70

Viktor frá Hamarsey 8,53

Spaði frá Fornusöndum 8,50

Stormur frá Rauðalæk 8,38

Stormur frá Dýrfinnustöðum 8,18

Eldjárn frá Syðri-Gegnishólum 8,24

Knörr frá Ketilsstöðum 8,37

Draupnir frá Kverk 8,59

Króli frá Skipaskaga 8,39

Askur frá Holtsmúla 1 8,44


Fréttasafn

14. maí 2026
Miðvikudaginn 20. maí verður haldið námskeið fyrir þá aðila sem hafa hug á að sinna hlaupagæslu í kappreiðum á árinu 2026. Hídí og LH standa að námskeiðinu saman og það er haldið í fjarkennslu á Teams og hefst klukkan 20:00. Samkvæmt reglum um kappreiðar þurfa hlaupagæslumenn í kappreiðaskeiði að vera viðurkenndir af Landssambandi hestamannafélaga og komast þar með á lista yfir viðurkennda hlaupagæslumenn. Farið verður yfir hlutverk og ábyrgð hlaupagæslumanna, helstu reglur kappreiða, siðareglur og fleira ásamt því að skoða skeiðspretti. Dómarar með gild dómararéttindi Gdlh og kynbótadómarar eru samþykktir af LH sem hlaupagæslumenn og þurfa því ekki að taka námskeiðið til þess að vera á listanum. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa brennandi áhuga á kappreiðum og góða þekkingu á gangtegundum. Til þess að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á katla@lhhestar.is . Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
11. maí 2026
Skráning á Menntaráðstefnu FEIF og LH í lok september er í fullum gangi.
8. maí 2026
LM2026 í Skagafirði hefur gefið út fyrirkomulag sýningargreina á Landsmóti. Boðið verður upp á B-flokk áhugamanna og A-flokk ungmenna sem sýningargreinar á LM. Hér getur að líta reglur um fyrirkomulag, framkvæmd og þátttökurétt knapa í þessum flokkum á LM2026. Hestamannafélögin þurfa að bjóða upp á þessa flokka í sínum úrtökum til þess að eiga rétt á að senda fulltrúa til keppni í þeim á komandi landsmóti. Að öðru leyti en fram kemur hér fyrir neðan fer val hrossa til þátttöku í þessum flokkum fram í gegnum úrtökur hestamannafélaganna samkvæmt lögum og reglum LH. B-flokkur áhugamanna • Knapar skulu vera í fullorðinsflokki, þ.e. 22 ára eða eldri. • Hestur getur aðeins keppt fyrir eitt félag hvert almanaksár og þarf að vera í eigu félagsmanns í því félagi (Reglur um gæðingakeppni, gr. 3.1.). • Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður. • Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki. • Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki. Sjá nánar í reglugerð um B-flokk áhugamanna . Athugið að úrtaka aðildarfélaga fyrir B-flokk áhugamanna skal fara fram með sérstakri forkeppni líkt og riðin er á Landsmóti. A-flokkur ungmenna • Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í A-flokki ungmenna eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum. • Sérstök forkeppni fer fram í A-flokki ungmenna og milliriðill. A-úrslit verða framkvæmd eins og úrslit í A-flokki. Fari þátttakendafjöldi yfir 50, verða að auki riðin B-úrslit. • Keppendum í barna- og unglingaflokki er heimil þátttaka í þessum flokki (Reglur um gæðingakepni, gr. 7.4.4.). • Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður. • Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki. • Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki. Þátttökuréttur í þessum flokkum miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga LH þann 15. apríl 2026. Aðildarfélög mega senda 1 keppanda fyrir hverja 250 félaga og svo framvegis.
1. maí 2026
Katla Gísladóttir hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu LH. Katla mun gegna 60% starfshlutfalli og verður starfsmaður mótamála hjá LH, starfar með keppnisnefnd og fleiri nefndum ásamt því að sjá um vefmiðla LH og fleiri verkefni. Katla hefur stundað hestamennsku frá unga aldri og hefur fjölbreyttan bakgrunn í hestamennsku, er alin upp við hestatengda ferðaþjónustu þar sem jafnframt var stunduð hrossarækt og tamningar. Hún hefur lokið reiðkennaraprófi frá Háskólanum á Hólum og keppti mikið á hestum í yngri flokkum. Í dag stundar hún hestamennsku með fjölskyldunni sinni á svæði Hestamannafélagsins Spretts. Katla hefur lokið BS í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur unnið við hönnun og ráðgjöf varðandi brunavarnir og öryggismál sl. 10 ár. Katla gegndi stöðu varaformanns Hestamannafélagsins Spretts frá 2024 – 2026. Hún hefur unnið mikið að sjálfboðaliðastörfum tengt starfi hestamannafélaga, fyrst í Geysi en síðar í Sörla og Spretti og hefur mjög mikla reynslu af mótahaldi hestamannafélaga, rekstri, framkvæmd og regluverki móta. „Ég hef mikinn áhuga á þessu starfi þar sem ég brenn fyrir málefnum hestamanna. Ég hef góða reynslu á mörgum hliðum hestamennskunnar, keppnisreglum og mótahaldi. Ég tel að reynsla mín bæði í starfi og í sjálfboðaliðaverkefnum muni nýtast vel í starfinu og hlakka til að starfa með hestafólki um allt land.“ Katla er boðin hjartanlega velkominn til starfa. Aðrir starfsmenn skrifstofu LH eru Berglind Karlsdóttir framkvæmdastjóri og Hinrik Þór Sigurðsson afreksstjóri. Þær breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi LH að Hinrik hefur minnkað starfshlutfall sitt á skrifstofunni niður í 50% og mun eingöngu gegna starfi afreksstjóra en hann hefur einnig starfað við mótamálin.
24. apríl 2026
Fyrir alla reiðkennara, dómara og annað fagfólk í hestamennsku...
15. apríl 2026
Takk fyrir stuðninginn
7. apríl 2026
Dregið hefur verið í happdrætti Allra sterkustu
3. apríl 2026
Heildarlisti hesta í stóðhestaveltu landsliðsins
Eftir Berglind Karlsdóttir 3. apríl 2026
Tollur undir Skugga frá Sumarliðabæ er í Stóðhestaveltunni
2. apríl 2026
Tollur undir Náttfara frá Varmalæk er í Stóðhestaveltunni
Lesa meira