Adrían og fleiri frábærir stóðhestar í Stóðhestaveltunni
Tollur undir Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er í Stóðhestaveltunni
Tollur undir Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er í Stóðhestaveltunni
Allra sterkustu verður á Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardagskvöldið 4. apríl nk.
Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og um 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu.
LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.
Miðsala í stóðhestaveltunni verður á ALLRA STERKUSTU og á vefsíðu LH, miðaverð er 70.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.
Við kynnum næstu 10 stóðhesta til leiks:
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,63
Viskusteinn frá Íbishóli 8,32
Heiður frá Eystra-Fróðholti 8,36
Fleygur frá Geitaskarði 8,63
Fáfnir frá Miðkoti 8,35
Forkur frá Breiðabólsstað 8,67
Víkingur frá Hofi I 8,51
Safír frá Mosfellsbæ 8,51
Gustur frá Efsta-Seli 8,32
Kór frá Skálakoti 8,55
Fréttasafn




























