Fryst endurinnflutt sæði í Stóðhestaveltu landsliðsins!

1. apríl 2026

Fryst sæði í stóðhestaveltu Landsliðs Íslands í hestaíþróttum

Á haustmánuðum 2025 hófst útflutningur á frystu sæði frá íslenskum stóðhestum til notkunar á erlendri grundu og upphófst mikil umræða í samfélagi hestafólks og ræktenda um það. Talsvert magn sæðis var flutt út til notkunar og fyrstu hryssurnar á erlendri grundu eru nú fylfullar við stóðhesta sem staðsettir eru á Íslandi.


Eftirspurn eftir íslensku, frosnu sæði úr Skýr frá Skálakoti og Þráni frá Flagbjarnarholti reyndist þó ekki eins mikil og ráð var gert fyrir og því er talsverður afgangur ónýttur af þessu sæði. Vegna þeirra nákvæmu ferla sem viðhafðir eru við útflutning og geymslu sæðisins var ekkert því til fyrirstöðu að flytja það heim aftur frá Evrópusambandslöndum en sæði sem staðsett er í  Noregi og Sviss fellur undir aðrar reglugerðir.


"Þetta eru vissulega vonbrigði að eftirspurnin hafi verið minni en við reiknuðum með" sagði Guðmundur Viðarsson eigandi Skýs og bóndi í Skálakoti í samtali við fjölmiðlafulltrúa LH, "en ég er ekki af baki dottinn og útflutningur á frystu sæði mun hefjast að nýju næsta haust".

 

Eigendur Skýs og Þráins, hafa ákveðið að afgangssæði sem berst til landsins verði gefið í Stóðhestaveltu landsliðsins fyrir Allra sterkustu, 4. apríl nk. og kann afreks- og landsliðsnefnd LH þeim bestu þakkir fyrir.


Áhugasamir ræktendur geta því orðið sér út um fryst sæði úr þessum frábæru hestum á ótrúlegu verði því miði í Stóðhestaveltunni kostar 70.000 kr, en til þess að tryggja sér þessa tolla þarf að senda póst á landslidsnefnd@lhhestar.is, takmarkað magn er í boði. 


*frétt þessi var birt 1. apríl*

Fréttasafn

4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
Lesa meira