Dalastígur

12. mars 2025

Ný stikuð leið frá Dalakofa í Landmannahelli.


Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitti Hestamannafélaginu Geysi styrk á síðasta ári til að stika svokallaðan Dalastíg. Leiðin þykir gífurlega falleg en er bæði brött og villugjörn og því miklar úrbætur að fá leiðina betur merkta og skráða.



Leiðn liggur víða um viðkvæmt land og hagar þannig að þar er ill mögulegt að komast um á vélknúnum ökutækjum. Því var farin sú leið að nýta hesta til að bera stikurnar , en þær voru fengnar frá Skógarafurðum ehf.


Tveir hestar voru notaðir til burðar og báru hvor um sig 56 stikur eða um 80kg sem festar voru með klyfberum. Þó nokkur tími fór í að finna út hvernig best væri að ganga frá hlassinu þannig að það færi vel á hestunum og færi ekki úr skorðum þegar farið væri um brattar brekkur.  Ásamt stikunum báru hestarnar hnakktösku með kögglum og öðru nesti.


Hestarnir Blesi frá Hagavík 26vetra og Piltur frá Lágafelli 16 vetra fengu sáu um burðinn að mestu.


Verkefni hestamanna félagana eru mörg og misjöfn en við minnum alla þá hestamenn sem nýta reiðvegakerfið að skrá sig í hestamannafélag, þannig stöndum við vörð um þessi mikilvægu mannvirki okkar. 


Myndirnar tala sínu máli.

Stikurnar

Lerkistikur frá Skógarafurðum ehf – Hér er búið að dýra endunum í skipalakk frá Slippfélaginu

Linkur

Klyfjarnar settar upp

 56 stikur fóru á hvort hross

Þarna er búið að setja hlassið á bæði hrossin – Blesi frá Hagavík 26 vetra og Piltur frá Lágafelli 16 vetra 

Fyrsta stikan sett nærri Dalakofanum 

Fyrsta brekkan búin og allt á sínum stað

Svarti kambur

Hlassið hálfnað

Hér sést hversu viðkvæmt landið er

Hér erum við fyrir ofan Rauðufossafjöllin og útsýnið er stórfenglegt - sést til Kerlinafjalla, Langjökuls og Hofsjökuls 

Á degi tvö var Valtýr notaður í staðinn fyrir klyfjahestana

Leiðin sem var stikuð er u.þ.b þar sem græna línan er. Dalakofinn er nest á myndinni og Dómadalsleið efst (hægra megin). Rauða línan til vinstri er Krakatindaleiðin og sú til hægri er um Pokahryggi 

Kortasjál

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira