FEIF YOUTH CUP 2024 - framlengdur umsóknarfrestur

4. apríl 2024

Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup 2024 fer að þessu sinni fram í Sviss dagana 13. til 20. júlí. Viðburðurinn fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Þetta er einnig frábært tækifæri til kynnast ungum og efnilegum knöpum frá öðrum löndum. Áhersla FEIF Youth Cup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu.

Ísland á 7 sæti á Youth Cup en umsóknar fresturer til 8. apríl.   Umsóknir skulu sendar á aeska@lhhestar.is. Í umsókninni þarf að koma fram nafn, heimilisfang, símanúmer, aldur, hestamannafélag og keppnisreynsla knapa sem og nafn, símanúmer og netfang forráðamanna. Þá þurfa að koma fram upplýsingar um enskukunnáttu umsækjenda auk þess sem þeir eru beðnir um að segja svolítið frá sér og af hverju þeir hafa áhuga á þátttöku í Youth Cup. Íslenskir keppendur fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur sem æskulýðsnefnd LH hefur milligöngu um að útvega.

Íslenska hópnum mun fylgja fararstjórar úr Æskulýðsnefnd LH.

Þátttökukostnaður er: 1065€ inn í því er gisting, fæði, kennsla, hesthúsapláss og skráningargjöld.

Þess utan þarf að greiða fyrir leigu á hesti, flug og aðrar samgöngur til og frá mótsstað og umframgistingu, þar sem hópurinn gæti þurft að fara fyrr út til að prófa og para saman hesta og knapa.

Frekari upplýsingar má nálgast í meðfylgjandi skjali: Invitation_FYCup2024

 

 

 

 

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira