Formannaskipti í landsliðsnefnd LH

30. september 2025

Sigurbjörn Eiríksson er nýr formaður landsliðsnefndar LH

Kristinn Skúlason hefur óskað eftir að láta af formennsku og setu í landsliðsnefnd eftir átta ár í sæti formanns landsliðsnefndar. Þar áður starfaði hann sem formaður Meistaradeildar í sex ár.


Kristinn segist þakklátur fyrir árin í starfi formanns landsliðsnefndur en segir einnig: "Á þessum átta árum hafa verið gerðar miklar breytingar á starfi landsliðsnefndar og umgjörð afreksstarfsins. Það að hafa þessa starfsemi í gangi allt árið hefur lyft íþróttinni og virðingu fyrir henni á hærra stig svo eftir er tekið bæði hérlendis og erlendis og innan raða ÍSÍ. Ég hef unnið með þremur formönnum LH, Lárusi, Guðna og Lindu og þremur landsliðsnefndum og vil ég þakka samstarf með góðu fólki í stjórn, nefnd og á skrifstofu.

Það er mikill heiður að vinna með góðu íþróttafólki þar sem þarf ekki lengur að nefna reglur og skyldur, allir knapar í landsliðshópunum eru miklar fyrirmyndir fyrir Landssamband hestamannafélaga út á við og fyrirtæki og almenningur taka eftir því".


Kristni eru færðar góðar þakkir fyrir óeigingjörn störf í þágu LH og um leið þökkum við framlag Drífu Dan eiginkonu hans en saman hafa þau lagt mikinn tíma og elju í störf í þágu hestamanna.


Stjórn LH hefur falið Sigurbirni Eiríkssyni að taka við formennsku í landsliðsnefnd og er hann boðinn velkominn til starfa. Sigurbjörn hefur mikla reynslu af félagsstörfum í þágu hestafólks, hann var formaður Meistaradeildar í þrjú ár, er stjórnarmaður í Hestamannafélaginu Spretti, situr sem varamaður í stjórn LH, tók sæti í landsliðsnefnd að loknu landsþingi 2024 og hefur gegnt stöðu varaformanns landsliðsnefndar við hlið Kristins undanfarið ár.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira