Framhaldsknapafundur fyrir knapa í gæðingalist

1. mars 2026

Haldinn verður annar knapafundur fyrir keppendur í gæðingalist

Eftir góðar undirtektir á knapafundi sem haldinn var 26. febrúar sl. heldur Faghópur um gæðingalist annan knapafund fyrir keppendur í gæðingalist.


Fjallað verður um ýmis dómsatriði í gæðingalist og fleiri atriði sem geta hjálpað við undirbúning fyrir komandi mót í gæðingalist.


Fundurinn fer fram á Teams, mánudaginn 2. mars kl. 19.00 og er opinn öllum áhugasömum knöpum í gæðingalist.


Hér er hlekkur á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/36192901005448?p=WVWKGecYnLfbitcRGB


Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira