Norðurlandamót 2026 í Svíþjóð

2. mars 2026

Norðurlandamótið 2026 fer fram í frábærri aðstöðu á Margaretehof í Everöd í Svíþjóð dagana 4-9 ágúst 2026.

Á NM er keppt í íþrótta- og gæðingakeppni í nokkrum aldursflokkum.

Norðurlandamót er heilmikill viðburður og er mikið kapp lagt í að mótið verði allt hið glæsilegasta og staðsetning þess þetta árið er afar hentug uppá ferðir og annað að gera. Margaretehof liggur rétt utanvið Kristianstad í Suður-Svíþjóð og er í um klukkustundar lestarferð frá flugvellinum í Kaupmannahöfn. Kristianstad er skemmtileg að heimsækja og hafa Íslendingar ætíð verið velkomnir þar þegar til dæmis handboltalandsliðið hefur verið að spila riðla sína á stórmótum og vel tekið á móti öllum.

 

Knapar sem hafa hug á því að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu og eru ekki í landsliðshópum LH nú þegar geta látið vita af sér og sótt um á umsóknarforminu hér að neðan. Athugið að keppt er í unglinga- ungmenna- og fullorðinsflokkum í íþrótta- og gæðingakeppni og allir knapar sem keppa fyrir Íslands hönd falla undir reglur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.

 

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um hestakost sem í boði er, helsta árangur knapa og hests ásamt almennum upplýsingum.

Stefnt er á að Ísland sendi 7 knapa í fullorðinsflokk , 10 ungmenni og 2-3 unglinga til leiks á mótinu.

 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá landsliðsþjálfurum og afreksstjóra LH með því að senda póst á hinrik@lhhestar.is.


SÆKJA UM ÞÁTTTÖKU Á NORÐURLANDAMÓTI 2026


Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira