Landsmót hestamanna á samfélagsmiðlum

2. mars 2026

Flaskar Landsmótssíður á samfélagsmiðlum

Við viljum vekja athygli á því að óprúttnir aðilar hafa sett upp svindl síður (pages), prófíla (profiles) og hópa (groups) á samfélagsmiðlum og þá aðallega Facebook, í nafni Landsmóts hestamanna. Facebook-síða Landsmóts hestamanna er "like-síða" með um 17þúsund fylgjendum. Gott er að hafa í huga að síður sem senda vinabeiðnir eða búa til hópa eru ekki á vegum Landsmóts hestamanna 2026.


Rétta Facebook síða mótsins er Landsmót hestamanna og síðan sendir ENGAR vinabeiðnir til fólks.

Öll miðasala á Landsmót fer í gegnum miðasölu Tix.

Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira