Upptökur af knapafundum í Gæðingalist

3. mars 2026

Faghópur í Gæðingalist LH hélt tvo knapafundi fyrir keppendur í gæðingalist, sá fyrri var fimmtudaginn 26. febrúar og sá seinni mánudaginn 2. mars.


Á fyrri fundinum var fjallað var um reglur í gæðingalist og reglugerðarskjalið útskýrt, en þar má finna vægi æfinga, skilgreiningar á æfingum og leiðara. Farið var yfir atriði sem dómarar eru að horfa eftir og mikilvæg hugtök útskýrð. Að lokum var farið yfir myndbönd af nokkrum góðum sýningum í gæðingalist.

Upptaka af fyrri fundi, haldinn 26. febrúar 2026


Á seinni fundinum var farið yfir vægi æfinga og hvaða áhrif vægi hefur á einkunnagjöf, fjallað var um atriði í reiðmennsku sem dómarar horfa til og að lokum sagði afreksknapinn Jakob Svavar Sigurðsson frá því hvernig hann undirbýr sig fyrir keppni í Gæðingalist.
Upptaka af seinni fundi, haldinn 2. mars 2026


Reglur um Gæðingalist eru hér.


Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira