Frítt inn á Hesta Quiz fyrir gesti menntahelgarinnar

26. nóvember 2024

Föstudagskvöldið 29. nóvember kl 20 mun fara fram Hestaspurningakeppni í reiðhöllinni í Víðidal og verður þetta skemmtilegur upptaktur fyrir menntahelgina, þar sem áhugasömum gefst tækifæri á að reyna þekkingu sína og minni þegar kemur að ýmsum staðreyndum um íslenska hestinn, knapa, keppnir og kynbætur. Spurningarnar eru skemmtilegar og mis auðveldar viðfangs en allar ýta þær undir líflegar umræður og fá okkur til að staldra við og hugsa til baka.

Viðburðurinn er styrktarviðburður fyrir landslið Íslands í hestaíþróttum og kostar því 1500kr inn, þeir sem eiga miða á Leiðina að gullinu fá frítt inn. 

Ekki láta þessa skemmtilegu kvöldstund framhjá þér fara.

Við hvetjum einnig alla hestamenn til þess að mæta á kennslusýningarnar á laugardag og ekki síður að mæta og fylgjast með okkar efnilegustu knöpum á sunnudaginn, en frítt er inn á sýningu U21 og Hæfileikamótunar.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira