Fyrirkomulag sýningargreina á Landsmóti 2026

8. maí 2026

LM2026 í Skagafirði hefur gefið út fyrirkomulag sýningargreina á Landsmóti.

Boðið verður upp á B-flokk áhugamanna og A-flokk ungmenna sem sýningargreinar á LM.


Hér getur að líta reglur um fyrirkomulag, framkvæmd og þátttökurétt knapa í þessum flokkum á LM2026. Hestamannafélögin þurfa að bjóða upp á þessa flokka í sínum úrtökum til þess að eiga rétt á að senda fulltrúa til keppni í þeim á komandi landsmóti.


Að öðru leyti en fram kemur hér fyrir neðan fer val hrossa til þátttöku í þessum flokkum fram í gegnum úrtökur hestamannafélaganna samkvæmt lögum og reglum LH.


B-flokkur áhugamanna

• Knapar skulu vera í fullorðinsflokki, þ.e. 22 ára eða eldri.

• Hestur getur aðeins keppt fyrir eitt félag hvert almanaksár og þarf að vera í eigu félagsmanns í því félagi (Reglur um gæðingakeppni, gr. 3.1.).

• Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður.

• Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki.

• Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki.


Sjá nánar í reglugerð um B-flokk áhugamanna. Athugið að úrtaka aðildarfélaga fyrir B-flokk áhugamanna skal fara fram með sérstakri forkeppni líkt og riðin er á Landsmóti.


A-flokkur ungmenna

• Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í A-flokki ungmenna eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum.

• Sérstök forkeppni fer fram í A-flokki ungmenna og milliriðill. A-úrslit verða framkvæmd eins og úrslit í A-flokki. Fari þátttakendafjöldi yfir 50, verða að auki riðin B-úrslit.

• Keppendum í barna- og unglingaflokki er heimil þátttaka í þessum flokki (Reglur um gæðingakepni, gr. 7.4.4.).

• Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður.

• Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki.

• Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki.


Þátttökuréttur í þessum flokkum miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga LH þann 15. apríl 2026. Aðildarfélög mega senda 1 keppanda fyrir hverja 250 félaga og svo framvegis.


Fréttasafn

3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
Lesa meira