Menntaráðstefna FEIF og LH 2026

11. maí 2026

Skráning á Menntaráðstefnu FEIF og LH í lok september er í fullum gangi.  

Skráning á Menntaráðstefnu FEIF og LH 23.-25. september er til 15. maí.  Hér er kynning á helstu kennurunum sem að ráðstefnunni koma.


Eyjólfur Ísólfsson er einn hinna 5 meistara Félags tamningamanna og gegnir stöðu prófessors við sænska Landbúnaðarháskólann SLU. Hann kennir reglulega á Wangen, býr sjálfur í Danmörku og kennir víða um heim, m.a. á Íslandi af og til. Hann var yfirreiðkennari Hólaskóla í 15 ár og er sannkallaður viskubrunnur hvað varðar fróðleik og reynslu í flestu sem viðkemur þjálfun og kennslu í Íslandshestaheiminum. www.toltmaster.com  


Árni Björn Pálsson er einn atkvæðamesti og farsælasti sýnandi á Íslandi, hann á óteljandi Landsmóts- og Íslandsmeistartitla að baki, er ríkjandi Heimsmeistari í tölti T1 og vann nú í vor Meistaradeild Líflands í áttunda skipti! Hann rekur, ásamt Sylvíu konu sinni, hrossaræktarbú að Kvistum, og sinna tamningu og þjálfun bæði eigin hrossa og annarra.


Dr. Sigríður Björnsdóttir hefur verið yfir hrossadýralækningum á Íslandi í fjölda ára ásamt því að vera einn atkvæðamesti vísindamaður landsins í þessum geira. Hún hefur nýlega tekið við starfi prófessors við Hestafræðideildina á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og vinnur þar sem fyrr við að bæta heilsu og velferð íslenska hestsins, ásamt kennslu og fræðistarfi. Sigríður mun fjalla um stöðu velferðamála ekki síst hjá keppnishestum og hvað ber að hafa í huga varðandi gangskiptingar og mat þeirra.


Kennarar Hólaskóla, nemendur skólans og skólahestarnir munu leiða okkur í gegnum fyrstu stig gangsetningar og upphaf skeiðþjálfunar, sem og hvernig má kenna og undirbúa sem best þessi mikilvægu atriði í þjálfun gangtegundanna. Tengt verður við hin 10 þjálfunarstig ISES og þróun kennslu gangsetningar og gangskiptinga almennt, bæði fyrir hross og knapa.


Mette Mannseth er ein af 5 meisturum Félags Tamningamanna og aðalreiðkennari Hólaskóla, en hún hefur kennt við skólann síðasta aldarfjórðung. Mette hefur um árabil verið einn farsælasti keppnisknapi landsins og ekki síður gengið vel á kynbótabrautinni, en hún og maður hennar, Gísli, hafa margoft fengið viðurkenningu fyrir ræktun sína á Þúfum. En þrátt fyrir alla velgengni í ræktun, þjálfun og keppni er Mette líklega þekktust fyrir að vera sérlega góður kennari með áratugareynslu bæði hérlendis og erlendis og djúpa innsýn bæði í kennslufræðum og öðru sem viðkemur þjálfun hrossa. www.thufur.is


Þórarinn Eymundsson er einn 5 meisturum Félags tamningamanna og sá þriðji þeirra sem kennir á þessari ráðstefnu. Hann hefur kennt við Hólaskóla í nærri 25 ár ásamt því að sinna kennslu erlendis og reka hrossabú fjölskyldunnar, Hestklett, nú staðsett að Nautabúi í Hjaltadal. Þórarinn hefur unnið til Íslandsmeista- og Landsmótstitla, sem og Heimsmeistaratitla, og hefur notið mikillar velgengni á keppnisvellinum sem og kynbótabrautinni til fjölda ára. Hann er þekktur fyrir að kafa djúpt í þjálfun og er hafsjór fróðleiks og reynslu.


Ísólfur Líndal Þórisson er einn af kennurunum við Hólaskóla og var nýlega ráðinn sem landsliðsþjálfari Íslands í hestaíþróttum. Hann hefur verið farsæll á keppnisbrautinni um árabil, kennir víða bæði hérlendis og erlendis, en einnig í gegnum netið og var kosinn reiðkennari ársins á Íslandi, árið 2020. Ísólfur rekur ásamt fjölskyldu sinni hrossabúið að Staðarhofi í Skagafirði. www.isoonline.is


Þorsteinn Björnsson hefur kennt við Hólaskóla í meira en 15 ár. Hann var kosinn reiðkennari ársins á Íslandi árið 2023 og hefur notið velgengni á keppnisbrautinni, sérstaklega í skeiðgreinum. Þorsteinn hefur síðasta áratuginn séð mikið til um að kenna nemendum skólans að leggja á skeið og mun miðla af þeirri reynslu sinni á ráðstefnunni.

 

Kafað verður í gangskiptingar, gangsetningu og hraðabreytingar, einnig upphaf skeiðþjálfunar sem og niðurtöku á skeið í keppni. Ætlað reiðkennurum, dómurum og öðru áhugasömu hestafólki! Ekki missa af!

Skráningu lýkur 15. maí!


Hér eru nánari upplýsingar og hér er hægt að skrá sig.

Greiðsla fyrir námskeiðið er í vefverslun LH.




Fréttasafn

17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
Lesa meira