Glæsilegir vinningar í happdrættinu

5. maí 2023

Happdrætti Allra sterkustu er með allra glæsilegasta móti og til mikils að vinna. Sala happdrættismiða er í fullum gangi hér á heimasíðunni en auk þess verður hægt að tryggja sér miða á meðan á sýningunni stendur. Dregið verður úr seldum miðum og niðurstöðurnar birtar á sama tíma og dregið verður í stóðhestaveltunni. Miðar sem eru keyptir í vefverslun verða sendir til kaupenda.

Allur ágóði af sölu happdrættismiðana rennur til landsliðsins í hestaíþróttum.

LH þakkar styrktaraðilum happdrættis kærlega fyrir stuðninginn.

Vinningarnir eru:

Top Reiter Titan hnakkur sem Top Reiter og Lífland gefa. 

Inneign hjá Verdi ferðum að upphæð 200.000kr.

Þráðlaus myndavél í hestakerrur frá Leikni

Comfort aðgangur fyrir tvo í Bláa lónið

3 gjafabréf að verðmæti 50000 kr hvert frá BM vallá

MJ art - 1 gjafabréf að verðmæti 70000 kr.

3 Bretti frá Furuflís

2 gjafabréf frá Gígju Einarsdóttur ljósmyndara.

2. gjafabréf frá Hulda.Art – gjafabréf uppá 50000 kr hvort

Gisting í eina nótt með aðgang að náttúrulaugum hjá Sumarliðabæ og reiðkennslu hjá Jóhönnu Margréti Snorradóttur. 

Hrímnir gefur beilsi að verðmæti 50.000kr

Ó.Johnsson & Kaaber gefur járningasett

2 gjafabréf frá Hreinn Taktur, Járning með skeifum og meðhöndlun ásamt þjálfunarplani hjá Dýrasjúkraþjálfun Söndrun

HorseDay, þrjár áskriftir í þrjá mánuði.

Reiðtími hjá Teit Árnasyni

Reiðtími hjá Eyrúnu Ýr Pálsdóttir

Reiðtími hjá Ragnhildi Haraldsdóttur

Reiðtími hjá Ásmundi Ernir Snorrasyni

Reiðtími hjá Elvar Þormarssyni

Reiðtími hjá Viðari Ingólfssyni

Reiðtími hjá Guðmundi Björgvinssyni

Reiðtími hjá Konaráði Val Sveinssyni

Reiðtími hjá Hans Þór Hilmarssyni

1 gjafabréf fyrir járningu frá Ella á Skíðabakka

1 gjafabréf fyrir gistingu hjá Rangá í eina nótt í Svítu með kampavínsmorgunverði.

*Athugið að happdrættið er ekki það sama og stóðhestaveltan. Dregið verður úr stóðhestaveltunni sama dag og miðar sendir til kaupenda*

 

 

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira